153. löggjafarþing — 33. fundur,  17. nóv. 2022.

starfsemi stjórnmálasamtaka.

29. mál
[17:44]
Horfa

Orri Páll Jóhannsson (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka framsögumanni þessa umræðu sem mér finnst afar mikilvæg og skemmtileg og gaman að fylgjast með þessu máli öllu saman. Mig langar að spyrja hann einnar spurningar í samhengi við þetta með sjálfstæði og mikilvægi stjórnmálasamtaka í samfélaginu, hver hans sjónarmið eða afstaða sé til þess að þetta snúist hreinlega ekki um fjármagn frá einstaklingum og/eða fyrirtækjum, eins og farið var yfir, heldur beinlínis bara opinbera fjármuni til að gæta jafnræðis og mikilvægis stjórnmálasamtaka í samfélaginu.