starfsemi stjórnmálasamtaka.
Herra forseti. Ég þakka kærlega fyrir þessa spurningu. Eins og ég sagði þá er þessi tillaga til að breyta þessu fyrirkomulagi, að laga jafnræðið varðandi núverandi fyrirkomulag. Ég myndi tvímælalaust líka vilja taka skref í því að lækka upphæðirnar í áttina að því að stjórnmálasamtök geti t.d. innheimt félagsgjöld. Það eru framlög frá einstaklingum þegar allt kemur til alls, nákvæmlega hversu mikið það á að vera er náttúrlega síðan annað mál. En jú, tvímælalaust. Ég er á þeirri skoðun að vegna ákveðins jafnræðis, vegna þess hvernig það eru ákveðnar stéttir þarna úti sem hafa ekkert endilega efni á því að hjálpa til og taka þátt í stjórnmálastarfi — að stjórnmálasamtök sem starfa sem talsmenn þeirra hópa eru þá bara ekkert á sama stað og þeir sem tala fyrir fjársterka aðila. Miðað við það þá finnst mér að mest af þessu ætti að fara í gegnum ríkissjóð, það séu opinberir styrkir sem fjármagni stjórnmálaflokka, en, og þá kemur stóra en-ið, það eru ekki stjórnmálaflokkarnir sem eiga að ráða þeirri upphæð, það er rosalega mikill munur þar á. Eins og er þá er þetta mjög undarlegt fyrirkomulag þar sem framkvæmdastjórar flokkanna spjalla saman um hversu mikinn pening þeir fá, þeir komast að einhverri ákveðinni niðurstöðu og leggja það fyrir fjárlaganefnd þingsins í gegnum formenn flokkanna. Það er voðalega skrýtin samkunda og samráð þar á milli sem býr til einhverja nýja upphæð varðandi hversu mikið stjórnmálaflokkar eiga að fá úr sjóðum ríkissjóðs. Þetta mætti vera dálítið mikið lýðræðislegra.