153. löggjafarþing — 33. fundur,  17. nóv. 2022.

starfsemi stjórnmálasamtaka.

29. mál
[17:47]
Horfa

Flm. (Björn Leví Gunnarsson) (P) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka alveg prýðisgóða spurningu, alveg mjög viðeigandi út af sögunni. Eftir hrunið var hér flokkur sem fékk styrki frá ríkinu, náði ekki 5% en samt yfir 2,5% og fékk þá fjármagn úr ríkissjóði. Það fé var ekki nýtt til stjórnmálastarfa. Við höfðum spurnir af því að það hefði verið nýtt til að fara á heimsmeistaramótið í fótbolta í Brasilíu og svoleiðis. Lögunum var eitthvað breytt eftir það; Ríkisendurskoðun er þarna með meiri aðkomu og stjórnmálasamtök þurfa nú að gera betur grein fyrir fjármunum sínum. Ég veit ekki alveg hvort það eru göt í því akkúrat eins og er. Mér finnst það, annaðhvort af því að það er í raun gat í lögunum eða að það er ákveðin framkvæmd í gangi sem ekki er verið að gera athugasemdir við, sem ég skil ekki alveg af hverju ekki er gert. Opinberir styrkir koma tvímælalaust með skilyrðum um að þeir fari vissulega í stjórnmálastarfsemi. Kaup á auglýsingum í fjölmiðlum, það má t.d. deila um það hversu mikið af þessum fjármunum á að fara þangað. Er það stjórnmálastarf? Hversu mikið telst kynning á slíku vera stjórnmálastarf o.s.frv.? Eigum við að hafa eitthvað öðruvísi fyrirkomulag varðandi aðkomu og fjármögnun í kringum kosningar og þess háttar? Þetta er eitthvað sem ég myndi vilja taka á svipaðan hátt og var gert með stjórnarskrána hérna á síðasta kjörtímabili, svona ákveðin rökræðukönnun t.d., og reyna að vinna það upp í lýðræðislegra samtali hvaða ábyrgð eigi að fylgja þarna.