endurvinnsla í hringrásarhagkerfinu.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir að vekja athygli á, ásamt meðflutningsfólki sínu, þessari tillögu sem lýtur að hringrásarhagkerfinu því að það er hugmyndafræði sem okkur er ekkert endilega sérstaklega tamt að ræða eða virða eða skilja. Hv. þingmaður fór mjög ágætlega yfir líklega þann besta heimssamning sem hefur verið gerður en það er akkúrat Montreal-samningurinn frá 1989. Hann talaði jafnframt um hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar sem við náum sannarlega betri tökum á ef við beitum svo aftur hringrásarhagkerfinu í allri okkar vinnu. Sú hugmyndafræði er einmitt fyrst kynnt 1987. Mig langar að spyrja hv. þingmann í samhengi við mikilvægi hringrásarhagkerfisins um regluverkið vegna þess að við deilum þeirri sýn að maðurinn er ágengasta skepnan, og þar er vitnað einmitt í téðan David Attenborough, og við göngum mjög freklega á gæði jarðar. Þetta er mælt m.a. með því að gefa út ákveðna dagsetningu á hverju ári þar sem sagt er að við förum á yfirdráttinn, með leyfi forseta, svokallaðan „Earth Overshoot Day“. Hann reyndist vera í lok júlí á þessu ári þannig að allir mánuðir sem þar á eftir koma eru á svokölluðum yfirdrætti með tilliti til auðlindanotkunar jarðar og það hlýtur að sjá það hver einasta manneskja að þetta gengur ekki. En mig langar að spyrja hv. þingmann hvort hann sjái fyrir sér að frekari tök, hugsanlega í formi alþjóðlegra samninga sem ganga vel, sé það sem við þurfum núna til að ná árangri í að snúa þessari óheillaþróun við, þ.e. frekara og stífara regluverk sem setur okkur hreinlega takmörk við því hvernig við neytum, eins og við gerum það nú freklega hér, sérstaklega á norðurhveli.