153. löggjafarþing — 33. fundur,  17. nóv. 2022.

endurvinnsla í hringrásarhagkerfinu.

34. mál
[18:01]
Horfa

Flm. (Björn Leví Gunnarsson) (P) (andsvar):

Forseti. Já, ég held að við verðum tvímælalaust að gera fleiri alþjóðlega samninga hvað þetta varðar. En við þurfum líka að sýna ákveðið fordæmi og hvert land fyrir sig í rauninni að taka ákveðið frumkvæði. Þegar ég fer út í búð og horfi á allar vörurnar í mismunandi umbúðum, mismunandi tegundum af umbúðum, þá veit ég ekki þegar ég tek vöruna úr hillunni hvernig ég á að endurvinna hana. Bara það er fáránlegt. Ég á að vita hvert allir hlutar hennar eiga að fara og ég á að vera viss um að þeir hlutar fari í endurvinnslu, fari alla leið, endi ekki einhvers staðar í vöruskemmu í Svíþjóð. Þetta er gríðarlega mikilvægt. Ég held að við gætum alveg, þrátt fyrir ýmsa alþjóðasamninga, verið mun strangari í sambandi við t.d. umbúðir eða annað efni í vörum sem við fáum hingað. Við þurfum hvort tveggja. Alþjóðasamningar eru tvímælalaust mikilvægir til þess að ná ákveðnum lágmörkum, en hver þjóð fyrir sig á að geta sýnt meiri metnað.