endurvinnsla í hringrásarhagkerfinu.
Virðulegi forseti. Hv. þingmaður segir að við getum verið strangari. Þetta er áhugavert, sér í lagi í ljósi þess að Alþingi samþykkti á síðasta ári einmitt löggjöf sem laut að því að koma okkur nær hringrásarhagkerfinu, löggjöf sem tekur gildi næstu áramót, komandi áramót, og miðar að því að skylda okkur öll til flokkunar á þeim úrgangi sem frá okkur fellur, bæði einstaklinga og fyrirtæki. Þá löggjöf, eins og mjög margt annað sem lýtur að umhverfismálum, byggjum við í rauninni á innleiðingum frá Evrópusambandinu af því að við höfum ekki færi á því í öllum tilfellum að skapa þær rannsóknir og undirbyggja þær rannsóknir ein og sér hér, fyrir utan það að það er auðvitað bara klókt í alþjóðasamvinnu að læra af öðrum. Í því samhengi, ef ég man rétt, kom m.a. til tals hvort við hér á Íslandi værum tilbúin að ganga lengra í einhverjum tilfellum en tilskipunin kvað á um og það er að hluta til gert í þessari löggjöf. En telur hv. þingmaður, í ljósi þeirrar stöðu sem við stöndum frammi fyrir, af því að ég hygg að við séum sammála um að maðurinn, hinn freki, gengur freklega á þetta allt saman, að íslenskt samfélag árið 2022, 35 árum eftir að hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar kom fram, sé tilbúið, þar sem við erum neyslufrekasta þjóð í heimi, til að taka á sig ríkari skyldur og strangari reglur eins og hv. þingmaður kom inn á?