153. löggjafarþing — 33. fundur,  17. nóv. 2022.

endurvinnsla í hringrásarhagkerfinu.

34. mál
[18:04]
Horfa

Flm. (Björn Leví Gunnarsson) (P) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég held að við verðum bara að gera það. Ég held að það sé ekkert flóknara en það. Við höfum sett okkur stærri markmið en alþjóðasamningar segja til um, eins og hv. þingmaður vitnaði til hérna áðan. Við erum að setja okkur stærri loftslagsmarkmið, sjálfstætt markmið um 55% samdrátt gróðurhúsalofttegunda. Ég sé ekki enn þá hvernig á að ná því, enn þá eru það bara orð á blaði, ég myndi vilja sjá aðgerðirnar sem þarf að fara í til að ná þeim markmiðum. Eitthvað eins og þessi tillaga finnst mér vera uppskrift að því samfélagi sem við ættum að stefna að, að byrja alla vega á því að reyna að útskýra fyrir fólki að þetta er ekki endilega spurning um að minnka neyslu eða ganga á einhver lífsgæði eða eitthvað svoleiðis, heldur að sú neysla og lífsgæði byggist á endurvinnslu, sé endurvinnanleg. Það er lykilatriðið í hringrásarhagkerfinu. Við eigum ekki að þurfa að gefa eitthvað upp á bátinn, við eigum bara að gera það á sjálfbæran hátt. Þannig að já, ég held að það sé þannig, ef við bara gerum það rétt.