endurvinnsla í hringrásarhagkerfinu.
Virðulegur forseti. Þetta er mikilvæg umræða og einnig umræðan um það hvort skilaboðin þurfi að koma að utan til að við tökum þau alvarlega. Ég er í rauninni ekki sammála því. Ég held, með fullri virðingu fyrir Evrópska efnahagssvæðinu sem sendir okkur 650 tilskipanir á ári hverju, sem var ekki svo þegar við gengum í það samstarf fyrir um aldarfjórðungi síðan, að við hefðum komið okkur upp mörgu af því sem þaðan barst í tilskipanaformi; í jafnréttislöggjöf, í samkeppnislögum og ýmsu því. Ég held að við séum á Íslandi í miklu betri stöðu til að koma okkur saman um hluti og fylgja þeim eftir heldur en flest lönd í heiminum. Við erum náttúruleg í okkar grænu stefnumörkun, við erum með græna náttúrulega orku beint úr iðrum jarðar, beint úr fallvötnum fossanna og við erum með tiltölulega hraða þróun í því að færa okkur yfir í rafmagnsbíla og við erum komin með löggjöf um rafflugvélar. Ég er með frumvarp um rafknúin skip sem vonandi hlýtur brautargengi hér og við erum tiltölulega samtvinnuð og á sömu bylgjulengd þegar hlutir eru almennilega kynntir. Það þarf sterka vitundarvakningu með eftirfylgni. Ég ætla bara að minna á það að heimsmarkmiðin munu ekki nást eins og samið var um varðandi matvælaöryggi. Parísarsamkomulagið, fyrirheitin þaðan, mun ekki nást. Það liggur alveg fyrir. Við erum mun betur sett sem okkar fámenna og tiltölulega samtvinnaða þjóð við að setja okkur raunhæf markmið og fylgja þeim eftir. Það er ekki þar með sagt að það gerist af sjálfu sér og þar kemur kannski að lykilatriðinu, að hyskni er því miður dálítið landlæg hér og dálítið landlæg hjá hinu opinbera, m.a. bara í því sem hér var verið að tala um í morgun, að einföldum fyrirspurnum er ekki svarað vikum og jafnvel mánuðum saman. Við þurfum að bæta verklagið. Við þurfum bara að segja sem svo: Ef þú situr á toppi píramídans í valdakerfinu þá skaltu gæta þess að aðstoðarmenn þínir, vararáðherrar og annað lið sé þannig í sveit sett að það framkvæmi vilja þinn og viljinn sé alveg skýr og einbeittur.
Ég er sannfærður um að ef við setjum okkur skýr markmið í þessu hringrásarhagkerfissamhengi þá muni þau nást. Endurvinnsla er þegar til staðar. Við fengum kynningu á mjög góðu fyrirtæki hér bara handan við Hellisheiðina, í Hveragerði, sem sannfærði mig um það alla vega að við erum að feta ljóssins stigu hér við borgarmörkin og við þurfum að stórefla þessa starfsemi. Við þurfum að setja okkur raunhæf markmið strax. Á hvers hendi væri það helst? Alþingi myndi væntanlega geta komið að því, við erum búin að setja einhverja löggjöf af stað en síðan er það eftirfylgnin, að hugur og hönd fari í sömu átt og það sé framkvæmt það sem fyrirheitin segja til um. Þess vegna ætla ég ekki að leggjast á sveif með þeim sem segja að allt þetta þurfi að koma að utan og við þurfum að fá skipanir að ofan og utan. Nei, nei, við vitum hvað klukkan slær. Við vitum hvað til okkar réttar heyrir í þessu. Hringrásarhagkerfið, sjálfbærnin, græni búskapurinn — þetta blasir við okkur og við skulum bara fara af stað í það og gæta þess að þeir sem bera ábyrgðina rísi undir henni og það er eitt af hlutverkum okkar hér í eftirlitsheimi þessa salar.