153. löggjafarþing — 33. fundur,  17. nóv. 2022.

útboð á rekstri heilsugæslustöðvar á Akureyri.

42. mál
[18:11]
Horfa

Flm. (Berglind Ósk Guðmundsdóttir) (S):

Virðulegi forseti. Ég mæli nú fyrir þingsályktunartillögu þess efnis að Alþingi álykti að heilbrigðisráðherra feli Sjúkratryggingum Íslands að bjóða út rekstur heilsugæslustöðvar á Akureyri.

Í ljósi þess að þáverandi heilbrigðisráðherra ákvað þann 7. nóvember 2019 að opna skyldi tvær heilsugæslustöðvar á Akureyri er kjörið að önnur þeirra verði boðin út og mun ég rekja í máli mínu hvers vegna ég tel þetta skynsamlegt fyrir aðgengi íbúa á landsbyggðinni að nauðsynlegri heilsugæsluþjónustu.

Aðgengi að heilbrigðisþjónustu utan höfuðborgarsvæðisins er slitrótt og biðlistar virðast einkenna þjónustuna, jafnvel í stórum þéttbýliskjörnum eins og á Akureyri. Einstaklingar njóta svo enn síður valfrelsis í heilbrigðisþjónustu utan höfuðborgarinnar ef þeir hafa um einhverja þjónustu að velja yfir höfuð. Fyrsta skrefið í eflingu heilsugæsluþjónustu um land allt var stigið á síðasta kjörtímabili með innleiðingu fjármögnunarlíkans heilsugæslu á landsbyggðinni. Þótt líkanið sé ekki fullkomið tókst loksins að tryggja að fjármagn fylgi notendum heilsugæslunnar alveg óháð rekstrarformi hennar. Því búa notendur og veitendur heilbrigðisþjónustu við sambærilegar leikreglur sem er frumforsenda þess að hægt sé að færa þjónustuna nær íbúum.

Annað skref var tekið í sumar þegar rekstur einnar af tveimur heilsugæslum í Reykjanesbæ var boðinn út en þingflokkur Sjálfstæðisflokksins með forgöngu hv. þm. Guðrúnar Hafsteinsdóttur hafði einmitt lagt fram þingsályktunartillögu þess efnis fyrr í vor. Íbúafjöldi Reykjanesbæjar er sambærilegur og stærð Akureyrarbæjar og því fátt ef eitthvað sem stendur í vegi fyrir því að endurtaka leikinn á Akureyri.

En af hverju einkarekstur? Reglulega kviknar umræðan um einkarekstur í heilbrigðiskerfinu og umræða um fjölbreyttar leiðir í rekstri á heilbrigðisþjónustu. Áður en lengra skal haldið er mikilvægt að því sé haldið til haga að leikreglurnar eru þær sömu óháð rekstrarformi; jafnt aðgengi íbúa, sama komugjald og sambærileg fjármögnun. En af hverju höfum við þetta ekki bara á höndum ríkisins? Með því að opna á valmöguleika íbúa til að velja á milli heilsugæslustöðva sem reknar eru af sitthvorum aðilanum þá mun íbúum standa til boða að velja þann veitanda þjónustu sem hentar þeim best hverju sinni, veitir bestu þjónustuna, þar sem biðtími er styttri eða sem er skemur frá heimilinu. Þannig munu fjármunirnir fylgja notandanum þangað sem hann kýs að fara og heilsugæslurnar hafa aukinn hvata til að bjóða upp á betri þjónustu. Það sama má segja um heilbrigðisstarfsfólkið sem getur valið á milli fleiri valkosta og valið þann vinnustað sem hentar því betur, hvort sem hann er rekinn af ríkinu, sveitarfélaginu eða einkaaðila. Leiða má líkur að því að auknir valmöguleikar hvað varðar rekstrarform hafi í för með sér að auðveldara verði að fá heimilislækna til starfa á Akureyri en oft hefur reynst erfitt að fá sérfræðinga, hvort sem er á sviði læknisfræði eða annarra sérfræðigreina, til starfa á landsbyggðinni og því mikilvægt að gera starfsumhverfi þeirra eins fjölbreytt og aðlaðandi og unnt er. Jafnvel núna reynist erfitt að fá hjúkrunarfræðinga til starfa á Akureyri þrátt fyrir nálægð við framúrskarandi nám.

Akureyri hefur góða sögu að segja af því þegar Heilsuvernd tók við rekstri hjúkrunarheimilanna Hlíðar og Lögmannshlíðar. Þar hefur tekist að snúa rekstrinum við en áður stefndu hjúkrunarheimilin í þrot. Ekki nóg með það heldur hefur ánægja íbúa, aðstandenda og starfsfólks með starfsemina aukist. Í rauninni er hún mæld alveg sérstaklega með reglulegum þjónustukönnunum og því er hægt að sjá ánægjuna aukast.

Önnur ástæða fyrir auknum einkarekstri, önnur en aukið valfrelsi, er ánægja og aukið traust. Samkvæmt þjónustukönnun Maskínu frá því í fyrra fyrir allar 19 heilsugæslustöðvarnar á höfuðborgarsvæðinu þá njóta einkareknar heilsugæslustöðvar almennt meira trausts en aðrar. Þar kom fram að allar fjórar einkareknu heilsugæslustöðvar höfuðborgarsvæðisins voru yfir meðaltali þeirra heilsugæslustöðva sem nutu mests trausts. Eins þegar spurt var um ánægju viðskiptavina þá röðuðu þær sér í fjögur efstu sætin. Ekki nóg með það heldur hefur traust og ánægja með þjónustu heilsugæslu á höfuðborgarsvæðinu almennt batnað sem gefur til kynna að valfrelsi notendanna hafi ýtt undir bætta þjónustu á öllum stöðvunum, ekki aðeins þeim einkareknu.

Virðulegi forseti. Kostir einkarekinna heilsugæslustöðva eru ótvíræðir og full ástæða til að bjóða ekki einungis upp á þann kost á höfuðborgarsvæðinu heldur einnig að tryggja landsbyggðunum möguleika á að nýta sér þjónustu þeirra. Á höfuðborgarsvæðinu geta notendur valið milli heilsugæsla sem reknar eru af ríkinu og þeirra sem eru einkareknar og þannig valið þann þjónustuveitenda sem þeim hugnast best. Valfrelsi neytenda ætti einnig að vera aukið á landsbyggðunum. Nú er kjörið tækifæri til að halda þessari þróun áfram í átt að öflugri heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni. Ég legg svo til að lokinni 1. umr. að málið gangi til hv. velferðarnefndar.