153. löggjafarþing — 33. fundur,  17. nóv. 2022.

útboð á rekstri heilsugæslustöðvar á Akureyri.

42. mál
[18:19]
Horfa

Flm. (Berglind Ósk Guðmundsdóttir) (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil þakka hv. þm. Jakobi Frímanni Magnússyni kærlega fyrir stuðninginn við þetta mál. Ég tek undir með honum að samkeppnissjónarmið eru líka mjög mikilvæg í þessum málum. Eins og ég sagði í framsöguræðu minni þá hefur það komið í ljós á höfuðborgarsvæðinu að aukin samkeppni bætir þjónustuna. Það hlýtur að vera markmiðið sem við stefnum að, bætt þjónusta við alla íbúa, alls staðar á landinu í heilbrigðisþjónustu. Því vildi ég bara koma upp og þakka fyrir þessa ræðu.