útboð á rekstri heilsugæslustöðvar á Akureyri.
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Ég ætla að ítreka nokkuð sem ég hef sagt hér áður: Við horfum upp á heilbrigðisþjónustuna þenjast út í útgjöldum og það er einhvern veginn ekki eins og það ætti að vera að mínu mati. Við ættum að vera orðin skynsamari og sjá með gleggri hætti samhengið á milli þess sem við neytum, milli lifnaðarháttanna og þess hvernig ástand okkar er. Ein af ástæðum þess að kerfið er orðið dýrara er væntanlega vegna þess að lífaldur fólks fer hækkandi. Út af fyrir sig er það vel, en það er spurning hvort sá þáttur málsins eigi endilega heima í heilbrigðiskerfinu, hvort hann ætti heima í félagsmálakerfinu. Aukin aðhlynning í heimahúsum og fyrst og fremst bætt lýðheilsa fram eftir aldri — hvernig getum við unnið í því? Hvernig sjáum við samhengið á milli þess að vera mjög varkár í mataræði, mjög einbeittur í því að hreyfa sig, anda, stunda jafnvel jóga og hugleiðslu, og þess að halda kröftum og heilsu fram eftir aldri? Það er klárt samhengi þar á milli.
Varðandi það sem hér er lagt fram í þjónustu við þá sem á henni þurfa að halda þá held ég að vitundarvakningin um stóra samhengið og hvað við þurfum að gera til að halda heilsu og forðast heilsugæslur og sjúkrahús sé þáttur sem þurfi að halda við. Við sáum hvað ávannst með vitundarvakningu um skaðsemi reykinga á sínum tíma. Hún virkaði. Við þurfum slíka vitundarvakningu um hvernig við höldum heilsu og orku í lengstu lög.