153. löggjafarþing — 33. fundur,  17. nóv. 2022.

útboð á rekstri heilsugæslustöðvar á Akureyri.

42. mál
[18:28]
Horfa

Flm. (Berglind Ósk Guðmundsdóttir) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka síðara andsvarið. Ég ætla að hafna þessum kreddum um einkareksturinn. Ég er hjartanlega ósammála hv. þingmanni að ríkið þurfi að veita alla mögulega þjónustu, að það sé alltaf besti aðilinn til að veita fullkomna þjónustu. Það er það ekki og gerir það ekki úti á landi, það er bara staðreynd. Þar af leiðandi er kjörið tækifæri til að lyfta þessu aðeins upp og fá inn fleiri rekstraraðila. Leikreglurnar eru þær sömu. Hvorki er greitt meira eða minna til einkareknu heilsugæslustöðvanna við komu, komugjaldið er það sama og fólk stendur jafnfætis. Þar af leiðandi hafna ég þessum skýringum en hins vegar fagna ég því að við séum að ræða hugmyndafræðilegan ágreining í þessari pontu því að það er rosalega skemmtilegt við þetta starf. Ég vona að hv. velferðarnefnd fari nákvæmlega yfir málið og að þar takist á þessi sjónarmið. Ég segi: Áfram einkarekstur.