153. löggjafarþing — 33. fundur,  17. nóv. 2022.

útboð á rekstri heilsugæslustöðvar á Akureyri.

42. mál
[18:29]
Horfa

Jakob Frímann Magnússon (Flf):

Forseti. Hér takast á hugmyndakerfin af sitthvorum vængnum. Þannig hefur það verið á Íslandi um langt aldabil, frá því að kommúnisminn brast á í rússnesku byltingunni í byrjun síðustu aldar. Austrið og vestrið hafa tekist á um hug okkar og hjörtu síðan. Sumir vildu aðhyllast kommúnismann, rússneska módelið, og aðrir ameríska kapítalismann. Við á Íslandi erum hér mitt á milli og sammæltumst um einhvers konar beggja blands. Ég held að það hafi bara verið ágætisblanda að vera með sósíalíska áherslu í velferðarmálum, menntamálum og öðru slíku og einkaframtak og kapítalisma að leiðarljósi hinum megin frá. Það er ofureðlilegt að Vinstri grænir, vinstra megin í salnum, og hægri Sjálfstæðismenn takist á um þetta núna sirka 100 árum síðar. Þegar Bill Clinton heimsótti Tony Blair í Bretlandi þá sammæltust þeir um að besta leiðin áfram væri einmitt þessi þriðja leið, þetta blandaða kerfi. Hér er hv. þm. Berglind Ósk Guðmundsdóttir að leggja til nákvæmlega það í sínu kjördæmi að við höfum hvort tveggja, einkarekstur við hliðina á ríkisrekstri.

Ég minni á það fyrir þá sem ekki hafa heyrt það áður, að án einkarekinnar heilbrigðisþjónustu í Reykjavík stæði ég ekki hér. Ég fór í hið ríkisrekna batterí með svakalega verki um miðja nótt og fékk þá greiningu að ég væri með of háar magasýrur. Þannig átti að senda mig til útlanda daginn eftir, með magasýrutöflur. En sem betur fer var ég með góðan heimilislækni sem sagði við mig: Ég treysti ekki þessari greiningu, komdu eins og skot niður á Domus Medica. Á innan við tveimur mínútum lá fyrir að ég var með gallblöðru sem var við það að springa og hefði ég komið í líkkistu heim frá útlöndum. Ég á einkarekinni heilbrigðisþjónustu líf mitt að launa, hvorki meira né minna, og ég mun standa með þeim valkosti til hinsta dags á meðan ég styð fyllilega hitt módelið sem við höfum sammælst um. Gefum heilbrigðisþjónustunni líka „bústið“ úr einkaframtaksáttinni. Þriðja leiðin blífur.