153. löggjafarþing — 33. fundur,  17. nóv. 2022.

stjórn fiskveiða.

47. mál
[18:47]
Horfa

Flm. (Eyjólfur Ármannsson) (Flf):

Virðulegur forseti. Ég flyt hér frumvarp til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða. Flutningsmenn eru ásamt mér, Eyjólfi Ármannssyni, hv. þingmenn Ásthildur Lóa Þórsdóttir, Guðmundur Ingi Kristinsson, Inga Sæland, Jakob Frímann Magnússon og Tómas A. Tómasson. Í frumvarpinu er lagt til að við lög um stjórn fiskveiða bætist við til bráðabirgða eftirfarandi ákvæði:

„Þrátt fyrir önnur ákvæði þessara laga er öllum þeim íslenskum ríkisborgurum sem hafa tilskilin réttindi til skipstjórnar og vélstjórnar, ef þess er krafist vegna stærðar vélar viðkomandi báts, heimilt að stunda fiskveiðar á eigin bát með fjórum sjálfvirkum handfærarúllum. Báturinn skal vera undir 10 metrum að lengd. Báturinn skal hafa viðurkennt haffæri. Á hverjum bát mega vera tveir menn í áhöfn og er hámarksfjöldi sjálfvirkra rúlla þá fjórar rúllur á bát. Að fimm árum loknum skal skoðuð reynslan af þessum veiðum með tilliti til þess hvort setja eigi viðbótartakmarkanir sem taki eingöngu til veiðisvæða bátanna og fjölda veiðidaga.

Veiðar þessara báta eru ekki reiknaðar til aflamarks og hafa ekki áhrif á heildarúthlutun aflamarks til annarra fiskiskipa.“

Frumvarp þetta var upphaflega lagt fram af Guðjóni Arnari Kristjánssyni, formanni Frjálslynda flokksins á sínum tíma, á 132., 133., 135. og 136. löggjafarþingi, mál 63. Það var lagt fram að nýju á 152. löggjafarþingi, þ.e. síðasta löggjafarþingi, með þeim breytingum að veiðarnar eru ekki bundnar við tiltekið tímabil líkt og í upphaflegu frumvarpi og þá er ekki lengur tiltekin hámarksstærð báts í brúttórúmlestum, heldur er miðað við lengd í metrum. Það er nú lagt fram að nýju óbreytt.

Guðjón Arnar Kristjánsson barðist fyrir því árum saman að almenningur fengi tækifæri til að stunda frjálsar handfæraveiðar. Sú barátta stuðlaði m.a. að því að opnað var á strandveiðar fyrir rúmum áratug síðan. Strandveiðarnar hafa skilað sjávarbyggðum miklu en strandveiðikerfið er eigi að síður mörgum annmörkum háð. Aðeins má veiða ákveðið marga daga í mánuði og aðeins á ákveðnum vikudögum. Þá er potturinn lítill og klárast reglulega áður en strandveiðitímabilinu lýkur, með þeim afleiðingum að margir ná ekki að fullnýta veiðirétt sinn.

Takmarkanir á atvinnufrelsi þurfa að byggjast á sterkum rökum og ekki ganga lengra en nauðsyn krefur. Aflahámark sem takmarkar fiskveiðar á eingöngu að ná til þeirra veiða sem ógna fiskstofnum, ekki til sjálfbærra veiða. Handfæraveiðar eru sjálfbærar og ógna ekki fiskstofnum landsins.

Flokkur fólksins hefur ávallt stutt frjálsar handfæraveiðar. Mikilvægt er að endurreisa rétt íbúa sjávarbyggðanna til að nýta sjávarauðlindina á þann hátt að fjölskyldur geti lifað af fiskveiðum. Öflug smábátaútgerð hleypir nýju lífi í sjávarbyggðirnar og verður forsenda enn fjölbreyttara atvinnulífs og mannlífs. Það heldur landinu öllu í byggð og er þjóðhagslega hagkvæmt. Frelsi til handfæraveiða er skref til sátta í deilum um sjávarútvegsmál sem hafa áratugum saman skaðað tiltrú almennings á stjórnkerfið og stjórnmálin.

Mig langar að lesa hér upp úr merkilegri grein sem Magnús Jónsson, fyrrverandi veðurstofustjóri og trillukarl, skrifaði í Fréttablaðið 9. nóvember sl. og heitir „Bjargvættur kvótakerfisins“.

„Eins og kunnugt er dæmdi Hæstiréttur Íslands 1998 að kvótakerfið í þeirri mynd, sem það hafði fram að þeim tíma verið útfært, stríddi gegn ákvæðum stjórnarskrárinnar um jafnræði og atvinnufrelsi. Þessi niðurstaða var síðan í meginatriðum staðfest í úrskurði mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna í október 2007.“ — Þessir dómar eru grundvöllur þess strandveiðikerfis sem við búum við í dag sem byggir á 48 dögum.

„Ljóst er að strandveiðarnar voru aldrei hugsaðar sem hluti af hinu ólögmæta kvótakerfi, enda eru þær í eðli sínu í sóknarmarki en ekki aflamarki. […] Í upphafi var gert ráð fyrir að afli á þessum veiðum drægist ekki frá úthlutuðum kvóta til þeirra báta sem einnig stunduðu strandveiðar. […] Handfæraveiðar eru í senn umhverfisvænar og sjálfbærar, hafa verið stundaðar frá upphafi byggðar og eru því hluti af menningu okkar og sögu. Þess vegna er það nánast móðgun við þessa veiðiaðferð að skilgreina strandveiðar og raunar allar handfæraveiðar sem einhverja félagslega starfsemi eða „ölmusu“ sem þurfi að vera upp á „örlæti“ kvótahafa í landinu komin eins og stundum er látið í veðri vaka þegar rætt er um svokallaðan 5,3%-pott kvótakerfisins. Strandveiðarnar eiga ekki heima í neinum „potti“ kvótakerfisins og því eiga stjórnkerfi strandveiða og kvótakerfis að vera aðskilin og óháð hvort öðru.

Engin rök eru fyrir því að veiðar á handfæri geti nokkru sinni ógnað viðkomu fiskistofna. Í því sambandi má benda á að litlar líkur eru á að heildarafli á strandveiðum fari yfir 15.000 tonn í fyrirsjáanlegri framtíð. […] Líklegur heildarafli á strandveiðum er því bæði innan breytileika aflareglnanna og langt innan þeirra varúðar- og skekkjumarka sem reiknaðar stærðir fiskstofna miðast við.

Enn er mikil vísindaleg óvissa um það hvort kvótastjórnun á nýtingu fiskstofna sé sú eina rétta, enda fjölmörg dæmi um að hún hafi ekki skilað þeim árangri sem stefnt var að. Má í því sambandi benda á að samkvæmt mælingum Hafrannsóknastofnunar á síðustu fimm árum hefur þorskstofninn minnkað um ca. 30% þrátt fyrir að í öllu hafi ráðgjöf stofnunarinnar og gildandi aflareglu verið fylgt. Hins vegar hefur nýlega verið ákveðið að auka veiðar á kolmunna á Norður-Atlantshafi um meira en 80% þrátt fyrir meinta ofveiði úr þeim stofni árum saman. Þá er það staðreynd að síðan að aflamarkskerfinu var komið á 1990 hefur ekki komið fram einn einasti stórárgangur af þorski hér við land þrátt fyrir að hrygningarstofninn hafi vaxið úr um 150.000 tonnum upp úr aldamótum upp í rúm 500.000 tonn 2017, sá stærsti frá 1962. Árleg nýliðun hefur á þessum 30 árum verið að jafnaði um eða innan við 140 milljónir fiska sem er langt undir meðaltalinu á „stjórnleysistímabilinu“ 1960–1990. Á þessu er að sögn vísindamanna engin þekkt skýring.

Einnig má vekja athygli á að skv. nýjustu útreikningum á árlegu afráni hvala á hafsvæðinu umhverfis Ísland er það talið vera rúmlega 13 milljónir tonna, þar af þorskfiskar um 10%. Að sögn vísindamanna er á þessari tölu mjög mikil óvissa og engin þekking er á áhrifum þessa gríðarlega afráns hvalanna á viðkomu þeirra fiskstofna sem nýttir eru hér við land. Þegar öll þessi óvissa og vanþekking er sett í samhengi ætti flestum að vera ljóst að hugsanlegur heildarafli strandveiðanna er algerlega hverfandi og langt innan eðlilegra skekkjumarka sem notuð eru í öllu náttúruvísindastarfi.“

Þetta þýðir að strandveiðarnar ógna ekki fiskstofnum við landið. Strandveiðarnar eru einfaldlega þannig að þú getur ekki mokað upp aflanum og algerlega tæmt fiskimiðin. Það er ekki eins og það sé verið að veiða með trolli eða öðrum netaveiðum. Hér er verið að tala um handfærarúllur, fjórar sjálfvirkar handfærarúllur á bát innan 10 metra og tveir menn á bát.

„Afla á þessum veiðum á ekki að taka úr aflamarkskerfinu enda eiga þessi fiskveiðikerfi ekkert sameiginlegt, eiga að vera aðskilin og án togstreitu í garð hvort annars. Hins vegar er ástæða til að benda á að með handfæraveiðum á grunnslóð má fá mikilvæg fiskifræðileg gögn ekki síður en með ýmsum „röllum“ og öðrum mælingum sem notaðar eru til vöktunar og rannsókna á fiskstofnum og öðru lífríki sjávar hér við land. Af slíkum gögnum veitir ekki.“

Það hefur sýnt sig að togararöllin hafa einfaldlega ekki skilað nægilegum upplýsingum til að byggja stofnmat þorsksins á. Svo einfalt er það. Togararöllin byggja á því að þeir veiða á sama tíma að ári, í sömu stefnu og á sama stað. Það væri hægt að fá miklu betri upplýsingar frá strandveiðunum um ástand fiskstofna hér við land. Og þegar mikill er fiskur þá er mikil veiði. Það sýndi sig síðastliðið sumar þegar strandveiðunum var hætt að ákvörðun stjórnvalda 21. júlí sl. Það var ekki í nokkru einasta samhengi við ástand fiskstofna hér við land og á grunnslóð og á þeim veiðislóðum sem strandveiðimenn sóttu. Ég tel að hér sé um mjög mikilvægt mál að ræða fyrir landsbyggðina, fyrir samfélagið í heild. Ef þetta frumvarp yrði samþykkt væri það skref í átt að sátt í samfélaginu um fiskveiðistjórnarkerfi landsins. Eina leiðin til að fá sátt um núverandi kvótakerfi er að heimila aukið frelsi og gefa sjávarbyggðunum frelsi til aukinna strandveiða. Þar verður að ríkja atvinnufrelsi og jöfnuður. Sá jöfnuður mun ekki nást fram nema með frjálsum handfæraveiðum, svo að það sé skýrt. Þetta verður að vera í sátt við strandveiðarnar, í sátt við landsbyggðina. Það er þannig sem við getum náð sátt um fiskveiðistjórnarkerfið.

Ég tel að þetta sé grundvallarmál fyrir landsbyggðina og þessa mikilvægu atvinnugrein þjóðarinnar sem skilar svo miklu í þjóðarbúið. Það er eingöngu með atvinnufrelsi sem við getum náð þessari sátt. Núverandi kerfi er algerlega komið í þrot. Það sýnir sig, það eru endurbætur aftur og aftur þar sem verið er að setja í pott 5,3% sem er algjörlega gjaldþrota kerfi. Það sýndi sig í sumar þegar veiðunum var lokað skyndilega. Það hafði mikil áhrif, t.d. á Norðurlandi og norðaustursvæðinu.

Ég tel ekki ástæðu til að hafa mál mitt lengra en legg málið í nefnd. Ég vonast til að það fái góða umfjöllun í atvinnuveganefnd.