153. löggjafarþing — 33. fundur,  17. nóv. 2022.

stjórn fiskveiða.

47. mál
[18:59]
Horfa

Jakob Frímann Magnússon (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þm. Eyjólfi Ármannssyni fyrir að flytja þetta mál. Í ljósi kröfu samtímans um skynsamlega nýtingu, um hringrásarhagkerfi, um sjálfbærni og um sanngirni þá er það einhvern veginn skrifað í skýin að þjóðin hér við endimörk hins byggilega heims, eylandið sem hefur byggt afkomu sína í gegnum aldirnar á sjálfsþurftarbúskap, eigi að geta sótt fisk í sjó og það er eitthvað fullkomlega óeðlilegt við það að vera með sprúðlandi silfrið allt í kringum landið en að einungis fáir útvaldir megi sækja það og þá bara hinir risastóru.

Mig langar að spyrja hv. þm. Eyjólf Ármannsson, sem er nú lögfróðastur allra í Flokki fólksins og þótt víðar væri leitað í þingflokkum hér: Hvernig í ósköpunum getur staðið á því að við látum þetta viðgangast? Þetta rímar ekki við það sem teldist vera í fyrsta lagi réttlátt og í öðru lagi sjálfsagt og eðlilegt. Þetta er sjálfsþurftarbúskapur á sjó sem við erum að tala um fyrst og fremst og eins og bent hefur verið á heggur hann hvergi nærri þessum fáu stóru risum á sjávarútvegsmarkaðnum. Hverju má það sæta að þetta ástand sé hér við lýði á því herrans ári 2022?