153. löggjafarþing — 33. fundur,  17. nóv. 2022.

stjórn fiskveiða.

47. mál
[19:01]
Horfa

Flm. (Eyjólfur Ármannsson) (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Hverju sætir það að strandveiðar hafa ekki verið gefnar frjálsar við landið síðan kvótakerfið var sett á? Það er mjög áhugaverð spurning og fróðlegt að velta henni fyrir sér. Ég tel að núverandi kvótakerfi hafi verið komið á með svipuðum hætti og þegar horft er á samkeppnismarkaði, þetta er svona „cartel“, menn skipta á milli sín miðunum. Alltaf þegar mörkuðum er að hnigna er mikil hætta á því að menn komi á samkeppniseinokun, skipti á milli sín markaðnum. Þarna voru sérhagsmunirnir, ég tel að þeir hafi stjórnað þessu á sínum tíma. Menn skiptu með sér markaðnum í prósentum, hver átti að fá hvaða hlut, prósentuhlut af heildaraflamagni við landið. Svo voru þessir hlutir gerðir framseljanlegir upp úr 1990. Ég tel að ástæðan fyrir því að strandveiðar hafa ekki verið gefnar frjálsar eftir að þeim var komið á, eftir þennan dóm og eftir þennan úrskurð mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna, sé sú að það er litið á strandveiðarnar, frelsi smábáta, sem ógn við þetta kerfi. Ég vil taka fram að þessu frumvarpi er ekki beint gegn stórútgerðinni. Þessu er ekki beint gegn kvótahöfunum. Við erum að segja að það eigi að gefa strandveiðar við landið frjálsar með fjórum handfærarúllum á bát til að auka frelsið neðan frá. Þetta myndi skipta sköpum fyrir sjávarbyggðirnar. Þetta myndi skipta sköpum fyrir landsbyggðina og hleypa nýju blóði í sjávarbyggðirnar og skapa sátt um kerfið vegna þess að það skiptir mjög miklu fyrir hinar dreifðu byggðir landsins að það sé skapað það mikið frelsi að fjölskyldur geti lifað af þessu og smáatvinnurekendur geti átt sinn eigin bát og tekið þátt í þessu, á þeim forsendum að þetta ógni ekki núverandi kvótakerfi. (Forseti hringir.) Það kemur fram í lok 2. mgr. 1. gr. þessa frumvarps, með leyfi forseta:

„Að fimm árum loknum skal skoðuð reynslan af þessum veiðum með tilliti til þess hvort setja eigi viðbótartakmarkanir sem taki eingöngu til veiðisvæða bátanna og fjölda veiðidaga.“