153. löggjafarþing — 33. fundur,  17. nóv. 2022.

stjórn fiskveiða.

47. mál
[19:03]
Horfa

Jakob Frímann Magnússon (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Halla tekur degi og umræður á þingi taka senn enda. Ég var mér til skemmtunar undir ræðu hv. þm. Eyjólfs Ármannssonar að reyna að setja þetta í samhengi við þá útgerð sem ég þekki best, langa útgerð á vegum úti, og bera saman þennan hefðbundna sjávarútveg við þá útgerð sem hljómsveitarrútan var lykilþáttur í. Segjum sem svo að það hefðu nú verið sett lög til að koma böndum á þann óhefta rekstur að það skyldu svo margar hljómsveitir vera að störfum; Sálin, Sólin, Nýdönsk, Lúdó og Stefán, Stuðmenn og Sumargleðin, allir að keppast um hituna. Hér er of mikið í lagt, segðu þingmenn á Alþingi, kannski tengdir bransanum á einhvern hátt, við þurfum að stemma stigu við því. Það er ekki nógu mikið af fólki úti á markaði til að fylla öll félagsheimilin, þetta verður ekki nógu hagkvæm útgerð. Við verðum að koma þessu í lög, setja kvóta á þetta og þeir sem eiga hljómsveitarrútur mega einir gera út framvegis á Íslandi. Við viljum enga trúbadúra hérna, einhverja smákalla að þvælast fyrir okkur. Þeir gætu skert aðsókn hjá okkur á komandi helgum, á komandi mánuðum og árum. Við viljum hafa þetta út af fyrir okkur og þeir sem eiga ekki hljómsveitarrútur af ákveðinni lágmarksstærð skulu alls ekki voga sér á vegina út. Stæðist þetta? Er þetta ekki dálítið absúrd samhengi? Þó að þetta sé sagt í hálfkæringi og hálfgerðu gamni, hæstv. forseta til ánægju og yndisauka, þá ætla ég að biðja um viðbrögð flutningsmannsins Eyjólfs Ármannssonar.