153. löggjafarþing — 34. fundur,  21. nóv. 2022.

Frestun á skriflegum svörum.

[15:02]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Forseta hefur borist bréf frá mennta- og barnamálaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 448, um jafnréttis- og kynfræðslu, frá Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur.

Einnig hefur borist bréf frá heilbrigðisráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skrifleg svör við fyrirspurnum á þskj. 422, um hjúkrunarfræðinga, frá Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur og á þskj. 247, um sjúklinga með ME-sjúkdóminn, frá Gísla Rafni Ólafssyni.