greinargerð setts ríkisendurskoðanda um Lindarhvol.
Herra forseti. Það er óboðlegt að hér ríki leynd um það hvernig staðið hefur verið að sölu ríkiseigna á vakt hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra. Í síðustu viku ræddum við um skýrslu sem sýnir hvernig fjármálaráðherra mistókst að tryggja opið söluferli, gagnsæi og jafnræði við sölu á tugmilljarða hlut í Íslandsbanka. Í því tilviki hefur almenningur bæði fengið að sjá úttektina sjálfa og drög að úttektinni sem aðeins örfáar stofnanir og þrír ráðherrar höfðu aðgang að. En þegar kemur að sölu Lindarhvols á 400 milljarða stöðugleikaeignum hjá einkahlutafélagi sem heyrði beint undir hæstv. fjármálaráðherra er sleginn hér leyndarhjúpur um greinargerð setts ríkisendurskoðanda. Það er álitamál, er sagt, hvort gera eigi greinargerðina opinbera en mér skilst að lögfræðiálit liggi fyrir þar sem kemur fram að ekkert sé því til fyrirstöðu að birta þetta gagn og að raunar hafi forsætisnefnd þingsins samþykkt, í apríl á þessu ári, að afhenda greinargerðina og sent bréf því til staðfestingar til fjármála- og efnahagsráðuneytisins. Ég segi bara: Við hér á Alþingi eigum öll, ekki bara nefndarmenn í forsætisnefnd, heimtingu á að fá að lesa þessa greinargerð og almenningur í landinu á heimtingu á því líka.