greinargerð setts ríkisendurskoðanda um Lindarhvol.
Forseti. Eins og kom hérna fram í máli hv. þm. Jóhanns Páls Jóhannssonar þá liggur fyrir lögfræðiálit sem er mjög skýrt í því að það er ekkert því til fyrirstöðu að birta þetta álit ríkisendurskoðanda á Lindarhvolsmálinu. En samt hefur forseti mánuðum saman neitað að birta það. Það hlýtur að þykja furðulegt í ljósi þess að eins og ég skil stöðuna í hv. forsætisnefnd þá er forseti eini maðurinn þar sem vill ekki birta þetta og hefur síendurtekið slegið þessu á frest, því að forseti getur nú ekki stoppað þetta en getur samt stoppað birtinguna með því að slá henni á frest. Þá spyr maður sig eins og hv. þingkona Helga Vala Helgadóttir: Hvað gerum við þingmenn í þessari stöðu þegar hv. forseti Alþingis neitar að birta skýrslu eða álit ríkisendurskoðanda þegar ekki virðist vera nein lögfræðileg ástæða til að neita að birta? Hvað gerum við þá?