153. löggjafarþing — 34. fundur,  21. nóv. 2022.

greinargerð setts ríkisendurskoðanda um Lindarhvol.

[15:19]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Forseti verður að ítreka það sem áður var sagt að skýrsla Ríkisendurskoðunar um Lindarhvol barst Alþingi vorið 2020, var til meðferðar í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd fyrir kosningar og ný stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd getur haldið þeirri umfjöllun áfram ef hún svo kýs. Það sem ágreiningur snýst um í þessu tilviki er greinargerð frá árinu 2018 sem var ekki fullkláruð skýrsla til Alþingis samkvæmt lögum um Ríkisendurskoðun og þar liggur ákveðinn lögfræðilegur vandi sem forsætisnefnd er með til meðferðar.