153. löggjafarþing — 34. fundur,  21. nóv. 2022.

greinargerð setts ríkisendurskoðanda um Lindarhvol.

[15:20]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V):

Forseti. Ég er sammála þeim sem hingað koma upp og tala um að hér geti heiður Alþingis verið í húfi. Það er sjálfsögð og eðlileg krafa að upplýsingagjöf til almennings sé mikil og góð, þegar framkvæmdarvaldið er annars vegar og þingið hins vegar. En það sem mér hefur fundist áhugavert að heyra hér er þessi munur á því hvort málið sé til meðferðar hjá forsætisnefnd, eins og hæstv. forseti hefur verið að halda fram, eða hvort málið hafi ítrekað verið sett á dagskrá af öðrum en forseta innan forsætisnefndar. Þarna er talsvert mikill munur á sem mér finnst brýnt að fá svör við frá hæstv. forseta. Er hæstv. forseti í virkri vinnu við að klára málið innan forsætisnefndar? Eða er það þannig að þingmenn í nefndinni þurfa reglulega að setja það á dagskrá undir liðnum önnur mál? Hversu mikil og einbeitt er vinnan? Þegar ofan á allt þetta liggur fyrir lögfræðiálit sem leiðir okkur í þá átt að það eigi að birta þetta þá er auðvitað brýnt að fá svör við öllum þessum spurningum. Við getum ekki verið með þá umræðu í gangi að Alþingi sjálft sé að reyna að þagga niður óþægileg mál.