153. löggjafarþing — 34. fundur,  21. nóv. 2022.

mönnunarvandinn í heilbrigðiskerfinu.

[15:22]
Horfa

Kristrún Frostadóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Hæstv. ráðherrar í ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur hafa ítrekað haldið því fram að vandi heilbrigðiskerfisins sé aðallega mönnunarvandi. Hæstv. fjármálaráðherra vill meina að vandinn hafi ekkert með fjármagn að gera, fólk fáist bara ekki í þessi störf. Þannig er reynt að fría hæstv. ríkisstjórnina ábyrgð eins og mönnunarvandi sé bara eitthvað utanaðkomandi og standi ekki í neinu samhengi við fjármögnun heilbrigðiskerfisins.

Formaður Læknafélags Íslands skrifaði grein á dögunum um þessi mál og þar er töluð hrein íslenska. Það er alveg ljóst að þessi mönnunarvandi er fjármögnunarvandi fyrst og fremst. Í greininni er rakið hvernig íslensk stjórnvöld hafa í áratug sett langlægsta hlutfall landsframleiðslu í rekstur heilbrigðiskerfisins í samanburði við önnur Norðurlönd og þar segir, með leyfi forseta:

„Óhugsandi hlýtur að teljast að hægt sé að reka heilbrigðisþjónustu sem stenst kröfur almennings fyrir svo lág framlög í landi sem er fámennt og strjálbýlt og þar af leiðandi óhagkvæm rekstrareining.“

Sveltistefna er orðið sem formaður Læknafélags Íslands notar um rekstur hæstv. ríkisstjórnar á heilbrigðiskerfinu okkar. Heilbrigðisstarfsfólk lendi í auknum mæli í langvarandi veikindum sökum álags, flýi land og skipti jafnvel alfarið um starfsvettvang.

Tilvitnun heldur áfram, með leyfi forseta:

„Vaxandi brotthvarf lækna úr of fáliðuðu heilbrigðiskerfi er orðið að stjórnlitlum vítahring þar sem álag á þau sem eftir standa ýtir enn undir frekara brotthvarf.“

Já, virðulegi forseti, stjórnlítill vítahringur eða hver er það sem er hér inni með stjórnina? Það blasir við að stóri mönnunarvandinn, sem hæstv. ráðherrar ríkisstjórnarinnar halda að þeir geti skýlt sér á bak við, er í grunninn fjármögnunarvandi. Þetta veit fólkið sem vinnur í heilbrigðiskerfinu. Þetta veit fólkið í landinu. Þetta veit ég.

En ég vil spyrja hæstv. heilbrigðisráðherra: Veit hann að mönnunarvandi heilbrigðiskerfisins er fyrst og fremst fjármögnunarvandi?