mönnunarvandinn í heilbrigðiskerfinu.
Hæstv. forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Kristrúnu Frostadóttur fyrir þessa spurningu. Hér setur hv. þingmaður fram þær tvær helstu áskoranir sem blasa við öllum þegar kemur að heilbrigðiskerfum heimsins, þ.e. mönnunarvandi og fjármögnun, áskoranir við að fjármagna heilbrigðiskerfið til framtíðar og manna þessi störf sem við þurfum á að halda. Að alhæfa um það að mönnunarvandinn sé fjármögnunarvandi er í besta falli mjög einhlít nálgun og þá þurfum við að sækja gögn, ekki satt? Það hefur birst mér að gögnin sem við eigum um mönnun í kerfinu okkar, um leið og við erum farin að leita að gögnum — samkvæmt lögum ber forstöðumönnum stofnana að sinna innra skipulagi og mönnun og þá eru til einhvers konar mönnunarviðmið en þau eru ekki einhlít heldur. Það er ekki hægt að alhæfa að mönnunarvandinn sé til kominn vegna vanfjármögnunar. Það er bara ekki hægt. Þess vegna hef ég sett af stað umfangsmikla mönnunargreiningu og forveri minn í starfi var búinn að setja á fót landsráð um mönnun og menntun, einmitt til að byrja að vinna að því að ná utan um þessa þætti. Ég er að fylgja því eftir. Við erum að fara í mjög umfangsmikla mönnunargreiningu, þvert á heilbrigðiskerfið, til að kortleggja mönnun í dag og þörfina til framtíðar. Við þurfum að horfa á þetta í samhengi við fjölgunina, við þurfum að horfa á þetta í samhengi við komur ferðamanna og sannarlega að horfa á þetta í samhengi við breytingar á aldurssamsetningu þjóðar. (Forseti hringir.) Þegar við ætlum að fara að fullyrða um að eitthvað sé vanfjármagnað þá verðum við líka að setja einhverja mælikvarða á það. (Forseti hringir.) Er verg landsframleiðsla sá mælikvarði sem við ættum að miða við? Það er ekki algildur mælikvarði heldur. Ég get tekið umræðuna um það í seinni hluta svars.
(Forseti (BÁ): Forseti minnir á að ræðutími í óundirbúnum fyrirspurnum er annars vegar tvær mínútur í fyrri umferð og ein mínúta í síðari umferð.)