mönnunarvandinn í heilbrigðiskerfinu.
Virðulegi forseti. Það má bæta við greiningunum og skýrslunum. Þær eru nokkrar McKinsey-skýrslurnar sem hafa komið út og ekkert hefur komið út úr. Þetta virðist vera það eina sem kemst áfram í þessari ríkisstjórn. Ráðherra segir að það sé alhæfing að fjármögnunarvandinn sé lykilatriði. Þá er alveg nóg að horfa á heildarmyndina, það vantar heil 3% upp í þau meðaltöl sem við erum að horfa á í löndunum í kringum okkur. Auðvitað er það ekki algildur mælikvarði en þetta er þriðjungsviðbót og það hljóta allir í þessum sal og þarna úti að átta sig á því að rekstrarsnilldin í heilbrigðiskerfinu hér er ekkert meiri en í löndunum í kringum okkur. Ef almennt verðlag er hærra í þessu landi en hinu, af hverju kostar það ekki meira að borga fyrir heilbrigðiskerfið í landinu okkar? En ég vil vekja athygli á því að formaður Læknafélagsins hefur líka sagt að það sem er alvarlegast við núverandi ástand sé ekki bara álag vegna manneklu heldur vonleysið sem er til staðar. Það eru svona svör hjá hæstv. ráðherra sem valda því. Hæstv. ráðherra kemur hér upp og segir fólki að þetta sé ekki sannleikur og engu eigi að bæta við. Ég spyr því hæstv. heilbrigðisráðherra: Er einhver von fram undan?