mönnunarvandinn í heilbrigðiskerfinu.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni. Það voru ekki mín orð að þetta væri ekki sannleikur. Það voru mín orð að þetta væri ekki algildur sannleikur. Við vitum og hv. þingmaður veit að aldurssamsetning þjóðar skiptir verulegu máli þegar við notum verga landsframleiðslu sem mælikvarða á það hvernig fjármögnuninni er háttað. Við erum með mun yngri þjóð. Eru lífsstílstengdir sjúkdómar að aukast hér? Já. Vantar fólk á vaktina? Já.
Af því að hv. þingmaður er í hv. fjárlaganefnd þá sjáum við til að mynda þær greiðslur sem birtast okkur hér í fjáraukalagafrumvarpi. Ef þeir 18 milljarðar eru ekki staðfesting á því að sá sem hér stendur og þessi ríkisstjórn standi með íslensku heilbrigðiskerfi — hv. þingmaður talaði hér um einhvers konar vonleysi — hvað er þá staðfesting á því? Þarna stendur skýrum stöfum: Þessi ríkisstjórn stendur með íslensku heilbrigðiskerfi. Það er ekkert vonleysi í gangi.