153. löggjafarþing — 34. fundur,  21. nóv. 2022.

aðgerðir í geðheilbrigðismálum.

[15:29]
Horfa

Halldóra Mogensen (P):

Forseti. Ég verð að viðurkenna að mér blöskrar viðbragðs- og aðgerðaleysi hæstv. heilbrigðisráðherra þegar kemur að hans gríðarstóra og mikilvæga málaflokki. Heilbrigðiskerfið okkar hefur hangið á sama lúna bláþræðinum árum saman og aldrei hefur nein alvöruuppbygging átt sér stað eftir þann mikla niðurskurð sem varð í málaflokknum eftir hrun. Skaðinn sem hlýst af því að hunsa mikilvægi þeirrar grunnþjónustu sem hlúir að andlegu og líkamlegu heilbrigði okkar getur verið óafturkræfur. Þessi grunnþjónusta á að grípa okkur þegar við eigum í erfiðleikum og ýta undir getu okkar og vilja til að taka þátt í og bera hlýhug til samfélagsins. Virðing okkar fyrir samfélaginu nær nefnilega ekki lengra en virðingin sem samfélagsleg kerfi sýna okkur sem einstaklingum í samfélaginu. Við lærum það sem fyrir okkur er haft. Heilbrigðiskerfið er bæði að bregðast þeim sem þurfa á þjónustu þess að halda og þeim sem vinna innan þess. Langvarandi vanfjármögnun og vangeta stjórnvalda til að bregðast við viðvarandi neyðarástandi er áþreifanleg og öllum augljós. Við verðum hvergi vör við neinar alvöruaðgerðir.

Forseti. Nú hefur hæstv. dómsmálaráðherra boðað stríð gegn skipulagðri glæpastarfsemi. Má vera að þetta hljómi aðeins út úr kú í umræðu um heilbrigðismál en það er það ekki þegar við skoðum þetta í samhengi við nýliðna atburðarás. Það á að fara í enn eitt stríðið gegn fólki sem er að öllum líkindum í rótina að kljást við afleiðingar langvarandi áfallastreitu, stríð gegn fólki sem aldrei hefur fengið viðunandi aðstoð. Ofbeldi verður nefnilega ekki til í tómarúmi. Áföll ganga í erfðir og valda hringrás sem endar ekki nema gripið sé inn í með aðstoð heilbrigðiskerfisins. Ofbeldi getur nefnilega af sér ofbeldi og stríð gegn ofbeldi er ekki svarið. Svarið er í heilbrigðiskerfinu, hjá heilbrigðisráðherra.

Ég spyr því: Er hæstv. ráðherra með einhverjar raunverulegar aðgerðir í vinnslu og nú er ég sérstaklega að tala um geðheilbrigðiskerfið? Eða er hann bara sáttur við að dómsmálaráðherra lýsi yfir stríði við skjólstæðinga hans og ætlar að láta þar við sitja?