153. löggjafarþing — 34. fundur,  21. nóv. 2022.

aðgerðir í geðheilbrigðismálum.

[15:31]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Willum Þór Þórsson) (F):

Hæstv. forseti. Ég vil þakka hv. þm. Halldóru Mogensen fyrir hennar spurningar hér. Í aðdraganda sínum fór hv. þingmaður yfir stöðuna í heilbrigðiskerfinu. Það er vissulega og hefur verið mikið álag. Mikið álag hefur verið í gegnum faraldurinn, það þekkjum við. Það hefur slegið heilbrigðiskerfið jafnvel enn frekar en flestar aðrar greinar samfélagsins, aukin veikindi, hættara við smitum o.s.frv. Því hefur það aukið álagið að það vantar mönnun inni í heilbrigðiskerfinu og sama fólkið hefur borið hitann og þungann. Það er vissulega mikil áskorun og hér höfum við oft og öll saman þakkað fyrir það.

Varðandi þessa spurningu um geðheilbrigðismálin þá kláruðum við stefnu í þinginu í geðheilbrigðismálum, eins og hv. þingmaður veit, sem var samþykkt í mikilli sátt. Margt er mjög gott í þeirri stefnu, m.a. geðráð, vegna þess að ég held að ef hægt er að tala um að eitthvað hafi verið gert betur hér og í samfélaginu okkar varðandi þessi mál þá er það einmitt opin og fordómalaus umræða. Það er algjör lykill að því að geðsjúkdómar og aðrir tengdir sjúkdómar, eins og fíknisjúkdómar, valdi ekki jaðarsetningu einstaklinga og að við náum betur utan um þessa hópa. Það er mjög jákvætt. Í þessari stefnu kemur stofnun geðráðs fram. Þessu höfum við fylgt eftir með mjög öflugum starfshóp sem er að skila aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum sem fylgir eftir stefnu með raunverulegum aðgerðum. Nýmæli í því þegar kemur að slíkum aðgerðaáætlunum er að hver og einn liður er kostnaðarmetinn. (Forseti hringir.) Ég verð að halda áfram í seinna svari en þetta er stórt mál að fara yfir.