153. löggjafarþing — 34. fundur,  21. nóv. 2022.

aðgerðir í geðheilbrigðismálum.

[15:34]
Horfa

Halldóra Mogensen (P):

Forseti. Ég er ekki vön að skipta skapi þegar ég tala við hæstv. heilbrigðisráðherra. Oftast hef ég nú bara átt rólegt og gott samtal við ágætan hæstv. heilbrigðisráðherra. En þögn hans núna hefur bara verið ærandi og það eru gríðarleg vonbrigði að verða vitni að því andleysi sem einkennir störf hæstv. heilbrigðisráðherra því það er neyðarástand í gangi. Það er neyðarástand í geðheilbrigðismálum og við erum að sjá birtingarmynd þess alls staðar í samfélaginu okkar. Það er verið að tala um stefnur sem koma einhvern tímann og aðgerðir sem eru óljósar. Ef þetta hefði verið orðræðan í Covid hefði það þótt stórfurðulegt. En nú erum við að horfa á gríðarlega bylgju ofbeldis og við sjáum að það virðist vera til nóg fjármagn hjá hæstv. dómsmálaráðherra til að fara í stríð gegn fólki. Þá hlýtur að vera til peningur til að hjálpa fólki. Ég spyr hæstv. heilbrigðisráðherra: Er ráðherra sáttur við þessa forgangsröðun? (Forseti hringir.) Ætlar ráðherra að tryggja raunverulegt forvarnastarf þannig að við getum komið í veg fyrir harmleiki framtíðarinnar? (Forseti hringir.) Hvar eru aðgerðirnar núna til að grípa utan um þá einstaklinga sem þurfa á því að halda svo að við séum ekki að horfa á aukið ofbeldi hér inn í framtíðina?