aðgerðir í geðheilbrigðismálum.
Hæstv. forseti. Það er miður að valda hv. þingmanni vonbrigðum. Málefnið er mikilvægt, ég tek undir það. Nýverið jukum við verulega fjármagn í geðheilsuteymin um allt land sem var mikið framfaraskref og hefur gefið góða raun. Við munum halda áfram að byggja upp þar. Þjónustan hefur þannig verið efld með auknu fjármagni, með rúmlega 2 milljörðum, á liðnum tveimur misserum. Þverfagleg geðheilbrigðisþjónusta í heilsugæslu um allt land hefur verið styrkt til muna. Það er mjög mikilvægt skref og við höldum áfram á þeirri braut. Auðvitað horfi ég til þeirrar aðgerðaáætlunar sem er í vinnslu. Það er okkar hlutverk að móta stefnuna, fara með hana í umræðu í gegnum þingið, fylgja henni eftir eins og þingið mælir fyrir um í formi þingsályktunartillögu og láta aðgerðirnar ganga upp. Það er okkar vinna. Það er okkar verkefni.