153. löggjafarþing — 34. fundur,  21. nóv. 2022.

umhverfisáhrif vegna förgunar koltvísýrings.

[15:37]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Eins og kom fram í Kjarnanum 8. nóvember sl. undirbýr opinbert hlutafélag, Carbfix, nú framkvæmdir við móttöku- og geymslustöð fyrir koltvísýring í Straumsvík. Þar stendur til að leysa koltvísýring upp í vatni og dæla honum djúpt niður í berglög þar sem hann mun hvarfast við berg, eins og basalt, og verða að steindum. Frá árinu 2014 hefur Carbfix fangað meira en 70.000 tonn af kolvetni í Hellisheiðarvirkjun, Orku náttúrunnar, og nú á að fara að farga 3 milljónum tonna af koltvísýringi á ári og farga honum með Carbfix-tækninni sem felst í að blanda hann vatni og dæla því niður í basaltlögin þar sem það umbreytist. Koltvísýringurinn á að koma frá iðnaði í Evrópu og verður fluttur hingað til lands með sérhönnuðum skipum. Fyrstu skipin eiga að koma 2025 en hvert skip mun flytja um 12.000–24.000 tonna af koltvísýringi í vökvaformi sem dælt verður niður á 1–2 kílómetra dýpi. Áætlaður kostnaður við flutninginn og förgun eru 30–65 evrur á hvert tonn eða um 5.000–10.000 íslenskar kr., eða alls 15–30 milljarðar. Þess vegna vil ég spyrja hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hvort fyrirliggjandi séu óyggjandi niðurstöður rannsókna á örvuðum jarðskjálftum þar sem horft er til magns niðurdælingar, þrýstings sem þarf til að koma efninu niður og áhrif á lekt jarðlaga. (Gripið fram í.) Lekt jarðlaga er hvað jarðlög geta tekið á móti miklu efni. Er tekið tillit til þess hvaða áhrif þetta getur haft á mengun, t.d. vatnsból og fleira?