umhverfisáhrif vegna förgunar koltvísýrings.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið. Jú, við erum að flytja inn gífurlegt magn af mengandi lofttegundum frá Evrópu til að dæla inn í okkar hreina landslag með hreinu íslensku vatni. Við gerðum okkur ekki grein fyrir því að þegar verið var að dæla þessu niður í Hellisheiðarvirkjun að þá urðu jarðskjálftar. Hvað vorum við þá að dæla niður á mánuði? 1.000 tonnum. Hvað ætlum við að dæla mikið niður þegar allt er komið á fullt í Straumsvík? 250.000 tonnum. Ekki 1.000 tonnum heldur 250.000 tonnum á mánuði. Við gerum okkur enga grein fyrir því hvað við erum að gera og ég spyr: Hver á að borga þetta? Á hverjum lendir þetta? Þeir sem selja þetta — eða þá að við kaupum þetta eða hvernig sem þetta verður gert, þetta kemur frá Evrópu — þeir sem eru að losa sig við koltvísýring sem við dælum niður, fá þeir mengunarkvóta? Geta þeir selt þennan mengunarkvóta? Erum við enn að fara þessa hræsnisleið að þykjast vera að bjarga einhverri mengun en gera þveröfugt? Og á hverjum bitnar það mest? Almenningi og þeim fátækustu.