153. löggjafarþing — 34. fundur,  21. nóv. 2022.

umhverfisáhrif vegna förgunar koltvísýrings.

[15:42]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S):

Virðulegi forseti. Aftur, svo það sé líka alveg á hreinu, þá er hugmyndin á bak við þetta að skapa verðmæti. Það ætlar enginn að fara að gera þetta ókeypis. Ef þetta er hægt í þeim mæli sem hv. þingmaður er hér að spá í og áætlanir eru uppi um þá mun það náttúrlega þýða gríðarlegar tekjur fyrir fyrirtækið og fyrir þjóðfélagið. Það er óumdeilt. Þetta verður ekki gert ókeypis, menn munu borga fyrir að gera þetta. Það er það sem er að gerast á mörgum öðrum sviðum. Við sjáum t.d. fyrirtæki hér sem heitir Running Tide, sem er með miklar hugmyndir um að nota náttúrulegar aðferðir sem er að finna í sjónum þegar þörungar fanga kolvetni. Það er nákvæmlega það sama. Og það er borgað fyrir þetta þannig að það snýst ekki um að þetta sé góðgerðarstarfsemi. Það er langur vegur frá. Menn ætla að hagnast verulega á þessu. Það liggur alveg hreint og klárt fyrir.