stofnun loftslagsbótasjóðs.
Virðulegur forseti. Ég beini hér fyrirspurn til hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra í kjölfar loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna sem fram hefur farið í Sharm El Sheikh í Egyptalandi undanfarinn hálfan mánuð og lauk í fyrradag. Töluverður fréttaflutningur var af því að illa gengi við samningaborð ráðstefnunnar og hlutir þokuðust heldur aftur á bak en áfram á nokkrum samningaborðunum. Í fyrrinótt bárust af því fréttir að samkomulag hefði náðst um loftslagsbótasjóð, svokallaðan „loss and damages“-sjóð, með leyfi forseta, sem ætlað er að styðja við vanþróaðri ríki í verkefnum sem þeim mæta. Sagt hefur verið frá því að áætlað er að leggja í sjóðinn um 100 milljarða bandaríkjadala árlega og í fréttum Ríkisútvarpsins í gærkvöldi spurði Bogi Ágústsson, með leyfi forseta: „Íslendingar hljóta að taka þátt í þessum loftslagsbótasjóði.“ Halldór Þorgeirsson, formaður loftslagsráðs, var til svara og svaraði, með leyfi forseta: „Að sjálfsögðu. Það á eftir að útfæra sjóðinn og það tekur einhver ár að útfæra hann.“ Það kom mér dálítið á óvart að það væri horft til þess að það tæki nokkur ár að útfæra sjóðinn í ljósi þess hvernig sjóðurinn var rökstuddur og mikilvægis þess að hann kæmist strax á laggirnar á meðan umræðan var í gangi þarna úti.
Ég vil spyrja hæstv. ráðherra: Lítur ráðherra svo á að Ísland sé nú þegar skuldbundið til þátttöku í sjóðnum? Í öðru lagi: Hvaða upphæð sér ráðherra fyrir sér að verði árlegt framlag Íslands? Í þriðja lagi: Hvenær áætlar ráðherra að fyrst komi til greiðslu í sjóðinn?