stofnun loftslagsbótasjóðs.
Virðulegi forseti. Ég skil nú ekkert af hverju hv. þm. Bergþór Ólason er að spyrja mig út í þennan fund því að hv. þingmaður var á fundinum, eftir því sem ég best veit. Ég ætti eiginlega frekar spyrja hv. þingmann um hvað hafi verið í gangi þarna. En fólk er náttúrlega að lenda og skoða hver niðurstaðan er af þessum fundi. Miðað við þær upplýsingar sem ég hef og hef auðvitað fylgst með þessu, að öllu gamni slepptu, þá finnst mér nú að þjóðir heims séu að átta sig á alvöru málsins og átta sig á því að verkefnið er stórt og það er kannski ein ástæðan fyrir því að menn gengu ekki jafn langt og margir vonuðust til, kannski er farið að gæta meira raunsæis þegar kemur að þessum málum. Hv. þingmaður spyr hér út í sjóð sem við getum kannski kallað tjón- og tapsjóð. Ég held að vísu að ef kemur til mikils skaða, sem allar líkur eru á og allt bendir til, munum við alltaf þurfa að bera einhvern kostnað af því. Við Íslendingar höfum alla vega fram til þessa ekki hikað við að hjálpa fátækari löndum þegar orðið hafa hamfarir þar, jafnvel í löndum sem eru mjög, mjög langt frá okkur. En hv. þingmaður svaraði í rauninni spurningunni sjálfur því að hann vísaði til þess að það ætti eftir að útfæra þetta allt saman. Það þarf að koma á stofnanafyrirkomulagi, uppbyggingu á stjórnarháttum, skilgreina efnistök hins nýja fjármögnunarfyrirkomulags, bera kennsl á og auka fjármögnunarleiðir og tryggja samræmingu við núverandi fjármögnunarfyrirkomulag. Þannig að hv. þingmaður vísaði í rauninni til þess og fór ágætlega yfir það að þó svo að þessi ákvörðun hafi verið tekin þá á eftir að svara fjölmörgum spurningum hvað sjóðinn varðar sem gerir það að verkum að hv. þingmaður fær ekki betri svör en raun ber vitni frá þeim sem hér stendur.