stofnun loftslagsbótasjóðs.
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir. Ég hef lent í því áður að fá ekki fyllri svör en ég hafði væntingar um. En það liggur þá sem sagt fyrir að það liggur ósköp fátt fyrir um þennan sjóð sem hefur verið mikið í fréttum. Þetta samkomulag náðist eftir að ég og íslensku þingmennirnir sem voru þarna úti vorum komnir til baka frá Egyptalandi. En mig langar til að spyrja hæstv. ráðherra hvort þetta hafi verið rætt í ríkisstjórn, þ.e. að taka þátt í þessum sjóði, verði hann á einhverjum tíma stofnaður. Og svo langar mig til að spyrja hæstv. ráðherra hvað hann teldi, án ábyrgðar, líklegt og hvað hann teldi skynsamlegt að framlag okkar Íslendinga væri árlega, því að þetta er sjóður sem gengur út á að það séu árleg framlög; eru það tugir milljóna, hundruð milljóna eða milljarðar? Ég veit að ég er að spyrja hæstv. ráðherra spurningar sem hann hefur ekki haft tíma til að ígrunda en ég er kannski spyrja fyrst og fremst út frá þeirri tilfinningu sem bærist í brjósti hæstv. ráðherra þessa stundina.