stofnun loftslagsbótasjóðs.
Virðulegi forseti. Hvað varðar spurningu hv. þingmanns um tilfinningu ráðherrans þá er hún bara góð, svo ég svari hv. þingmanni. Það er ekki í fyrsta skipti en hv. þingmaður veit auðvitað að það er ekkert hægt að svara þessum spurningum. Varðandi spurninguna um hvort það sem varðar ráðstefnuna hafi verið rætt í ríkisstjórn þá hefur það auðvitað verið gert. (Gripið fram í.) Krafa frá þessum ríkjum hefur alveg legið fyrir lengi, virðulegi forseti, um að þau ríki sem hafa meira á milli handanna komi að styrkingu þeirra í þessari baráttu. Svo er alltaf spurning um hver niðurstaðan verður í því. Hv. þingmaður rekur alveg ágætlega að þetta er nokkuð sem á eftir að leggja mikla vinnu í og það verður auðvitað gert. Aftur tek ég það út úr þessu að menn eru farnir að átta sig á alvöru málsins, hversu stórt verkefnið er. Þótt við séum með risaverkefni hjá okkur þá held ég að það sé augljóst að það eru mörg ríki sem við myndum alls ekki vilja skipta við þegar kemur að þessu verkefni.