153. löggjafarþing — 34. fundur,  21. nóv. 2022.

sala Íslandsbanka og fjármögnun heilbrigðiskerfisins.

[15:52]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Willum Þór Þórsson) (F):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni þessa fyrirspurn. Það er eðlilegt að spurt sé. Fyrst vil ég nú segja og ítreka það sem ég sagði hér í fyrri fyrirspurn, af því við erum að vísa í fjárlög og fjáraukalög, að allar þær fjárhæðir sem þar endurspeglast staðfesta það að þessi ríkisstjórn og sá er hér stendur standa með íslensku heilbrigðiskerfi við þær aðstæður sem við búum við og höfum verið að fara í gegnum. Það er auðvitað bara þannig að ef við höldum ekki til streitu sölu og tekjumyndun upp á 70 milljarða þá myndi það auka skuldsetningu og það væri bagalegt. Það kæmi ekki til greina að draga úr framlögum á föstum fjárlögum inn í þann ramma sem heilbrigðiskerfið okkar er. Það liggur alveg fyrir. En ég held að við verðum, eins og Alþingi er að gera núna og hv. stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, að fara í gegnum þau gögn og þá fínu skýrslu sem liggur fyrir og skoða hana. Það er ekkert enn þá sem útilokar það að ríkisstjórnin haldi sig við sína stefnu í að klára þessa sölu og fjármagna þannig innviðauppbyggingu í samfélagi okkar. En ég held að við verðum að klára umræðuna um þessa skýrslu og fara í gegnum hana og svo liggur auðvitað fyrir að Seðlabanki Íslands, Fjármálaeftirlitið, þarf að fara betur í gegnum framkvæmdarenda þessarar sölu. Það er ekkert sem liggur fyrir núna sem útilokar það að ríkisstjórnin haldi sig við sölu á Íslandsbanka.