sala Íslandsbanka og fjármögnun heilbrigðiskerfisins.
Ég þakka hæstv. heilbrigðisráðherra fyrir svörin. Ég lít svo á að þessi óvissa sem upp er komin sé bein afleiðing af þessari síðustu sölu Íslandsbanka, sem reyndar er talað um að hafi verið hagfelld fyrir ríkissjóð. Hún er ekki hagfelldari en svo að öll fjárlagavinnan okkar er í töluverðu uppnámi vegna þess að ríkisstjórnarflokkarnir þrír ganga ekki lengur í takt um það hvort af sölunni verður. Hæstv. heilbrigðisráðherra talar hér um að það sé í sjálfu sér ekkert sem útiloki það að fram verði haldið. Ég er hingað komin til að benda á það og rifja upp að frumvarp til fjárlaga gerir ráð fyrir þessum tekjum upp á 76 milljarða kr. Mér finnst gott að heyra að heilbrigðisráðherra vilji verja heilbrigðiskerfið en ég leyfi mér að fullyrða að þjóðin vill meira en það. Þjóðin vill styrkja þessa innviði. Þjóðin vill styrkja heilbrigðiskerfið, styrkja Landspítalann. (Forseti hringir.) Ég spyr: Er einhugur í ríkisstjórninni um framhaldið? Telur ráðherra að af þessari sölu verði og hver eru áhrifin á heilbrigðiskerfið verði reyndin önnur?