mótun stefnu í fiskeldismálum.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. matvælaráðherra fyrir svörin og tek undir orð hennar hvað varðar mikilvægi þess að koma þessari stefnu á fót, því að eins og hæstv. ráðherra sagði er þetta gríðarlega stór atvinnugrein í hröðum vexti. Því er umgjörðin svo mikilvæg til að skapa sátt um greinina. Matvælaráðherra hefur líka verið duglegur við að setja fleiri mikilvæga starfshópa á laggirnar. Einn þeirra er um smitvarnir í sjókvíaeldi. Samkvæmt mínum upplýsingum átti hópurinn að skila af sér greinargerð um komandi áramót. Það er auðvitað lykilskref í uppbyggingu greinarinnar að hafa öflugar sjúkdómavarnir og skerpa á heilbrigðismálum. Getur ráðherra farið aðeins dýpra í gang þeirrar vinnu og hvaða væntingar ráðherra hefur í þeirri vinnu?