mótun stefnu í fiskeldismálum.
Forseti. Já, það get ég. Starfshópurinn var skipaður í kjölfar þess að blóðþorri greindist á Austfjörðum í nóvember 2021 fyrir réttu ári og tjónið sem af þessum sjúkdómi leiðir er talið í tugum milljarða króna. Því er mikilvægt að uppræta hann eins fljótt og hægt er hér á landi. Þessi hópur er skipaður með tilteknum hætti sem ég ætla ekki að eyða tíma í að telja upp. Frá byrjun hefur hópurinn haldið átta fundi og er að bera saman reglurnar hér við það sem gerist í Færeyjum og Noregi með það fyrir augum að bæta regluverkið hér, bæta viðbrögð, eftirlit og vöktun í íslensku fiskeldi. Þetta er mjög mikilvægt vegna þess að blóðþorri er alvarlegur veirusjúkdómur sem veldur miklum afföllum og áhrifin á atvinnugreinina eru mikil, en nauðsynlegt og þarft samtal hefur átt sér stað í gegnum vinnu starfshópsins. Hópurinn er enn að störfum en samkvæmt skipunarbréfi þá á hann að skila af sér í árslok. Ég vænti þess að það muni standa auk þess sem hópurinn á þá að leggja til bætt regluverk og betra umhverfi þannig að reglurnar hér verði sambærilegar við það sem gerist í Færeyjum og Noregi og í samræmi við reglur í Evrópu um dýrasjúkdóma.