153. löggjafarþing — 34. fundur,  21. nóv. 2022.

ákvörðun nr. 396/2021 um breytingu á XX. viðauka við EES- samninginn o.fl.

475. mál
[16:16]
Horfa

utanríkisráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):

Virðulegi forseti. Með þessari þingsályktunartillögu er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta fyrir Íslands hönd sex ákvarðanir sameiginlegu EES-nefndarinnar frá árunum 2021 og 2022 með breytingum á II., X., XIII. og XX. viðauka EES-samningsins.

Með þessum ákvörðunum eru felldar inn í EES-samninginn sjö gerðir á sviði samgangna og umhverfismála, að því er varðar útblástur frá ökutækjum, gerðarviðurkenningu ökutækja, markaðseftirlit með ökutækjum og tengdum búnaði, vissar reglur um vinnuskilyrði ökumanna og þjálfun þeirra.

Haft var samráð við viðeigandi þingnefndir Alþingis vegna upptöku umræddra gerða í samninginn eins og nánar er greint frá í þingsályktunartillögunni. Í henni er einnig greint frá áhrifum innleiðingar gerðanna og kostnaði sem henni fylgir.

Vegna ákvörðunar nr. 155/2022 er rétt að nefna að ákveðnir námsþættir endurmenntunar atvinnubílstjóra eru taldir krefjast verklegrar þjálfunar þar sem ekki er hægt að kenna þá með fullnægjandi hætti í fjarnámi. Sökum þess er mælt fyrir um að ekki skuli kenna meira en 12 klukkustundir af 35 í fjarnámi. Í ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar var gerð aðlögun þannig að þessi regla um hámarksfjölda tíma sem kenndir eru í fjarnámi gildir ekki um Ísland. Þær kröfur eru þó gerðar að hluti kennslunnar sé verklegur.

Jafnframt voru gerðar sértækar aðlaganir á nokkrum gerðanna með tilliti til tveggja stoða kerfis EES-samningsins. Eftirlitsstofnun EFTA er veitt heimild til að leggja gjöld á framleiðendur ökutækja og sektir á framleiðendur ökutækja og aðra markaðsaðila, en sú heimild liggur hjá framkvæmdastjórninni í ESB-stoðinni. Fordæmi eru fyrir því að Eftirlitsstofnun EFTA séu veittar sambærilegar heimildir, m.a. í umferðarlögum. Um er að ræða vel afmarkað framsal valds á afmörkuðu sviði sem ekki er gert ráð fyrir að verði íslenskum aðilum verulega íþyngjandi. Á Íslandi er enginn starfandi framleiðandi ökutækja og þykir ósennilegt að heimildin hafi bein áhrif á aðra markaðsaðila hér á landi, t.d. umboðs- og dreifingaraðila.

Virðulegi forseti. Upptaka fyrrgreindra gerða í EES-samninginn og innleiðing þeirra hér á landi kallar á lagabreytingar og því settu íslensk stjórnvöld stjórnskipulegan fyrirvara við ákvarðanirnar þegar þær voru teknar í sameiginlegu EES-nefndinni. Í þeim tilvikum sem stjórnskipulegur fyrirvari er settur ber að afla samþykkis Alþingis áður en ákvörðun er staðfest og fyrirvaranum aflétt.

Til innleiðingar á gerðunum hefur innviðaráðherra lagt fram frumvarp um breytingar á lögum um farþegaflutninga og farmflutninga á landi og frumvarp til breytinga á umferðarlögum á yfirstandandi löggjafarþingi.

Ég legg til, virðulegi forseti, að við lok þessarar umræðu verði tillögunni vísað til hv. utanríkismálanefndar.