153. löggjafarþing — 34. fundur,  21. nóv. 2022.

kirkjugarðar, greftrun og líkbrennsla.

27. mál
[16:30]
Horfa

Orri Páll Jóhannsson (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. flutningsmanni fyrir framsöguræðuna. Mig langar að spyrja út í atriði sem hv. þingmaður kom inn á undir lokin í framsögu sinni en það lýtur að legstaðaskránni og hugmyndum um að þegar og ef þetta næði fram að ganga væri sú heimild inni að maður gæti fullnustað beiðni aðstandenda sinna. Hvernig sér hv. þingmaður fyrir sér útfærsluna á þessu? Snýst þetta um að gefa upp ákveðinn punkt þar sem ösku hafi verið dreift, þannig að það liggi fyrir, eða að aska viðkomandi liggi á ákveðnu landsvæði.

Hitt sem mig langar að spyrja hv. þingmann út í — nei, ég læt þetta duga í bili.