153. löggjafarþing — 34. fundur,  21. nóv. 2022.

kirkjugarðar, greftrun og líkbrennsla.

27. mál
[16:34]
Horfa

Flm. (Bryndís Haraldsdóttir) (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég er alveg tilbúin að vinna eitthvað með þetta til að komast að samkomulagi um að hægt sé að afgreiða þetta mál frá þinginu. Ég lít svo á að það sé stóra málið að gera breytingar á þessu. En út af því að hv. þingmaður kemur inn á það þá vísa ég í upplýsingar um hvernig þessu sé háttað á Norðurlöndunum en ástæða er til að benda á að í umsögnum frá Kirkjugarðasambandinu kemur fram að þeir eru ekki sammála greinargerðinni, telja hana ekki alls kostar rétta. Ég tók það því fram í framsöguræðu minni að hún byggðist á upplýsingum sem ég hafði óskað eftir og upplýsingaþjónusta þingsins vann fyrir mig.

Það kann að vera að eðlilegt sé að hafa einhver takmörk á því hvar megi dreifa ösku. En mig langar aðeins, varðandi umræðuna um legstaðaskráninguna, að nefna — vegna þess að í dag má ekki dreifa ösku á fleiri en einn stað eða dreifa og jarðsetja — að það kann að vera að aðstandandi vilji gjarnan fá að jarðsetja duftker í sérstökum duftgarði, eða jafnvel í kirkjugarði hjá öðrum ættingjum, í fjölskyldureit eða eitthvað slíkt, en hinn látna einstakling hafi líka langað að láta dreifa ösku sinni annars staðar. Ég skil ekki af hverju við ættum ekki að segja að það sé bara allt í lagi, að það sé allt í lagi að dreifa ösku fólks yfir Faxaflóa eða sumarbústaðaland sem það hefur gróðursett plöntur á, en svo sé líka hægt að grafa duftkerið. Það er ein af ástæðunum fyrir því að ég tel ástæðu til að breyta þessu.

Varðandi þetta með vatnsverndina þá fer ég að hugsa um hringrásina okkar, hvað sé hættulegt eða ekki í þeim efnum. En þess skal getið að þegar ég lagði þetta mál fram þá leitaði ég mér upplýsinga um það hvort það væru einhver heilbrigðissjónarmið sem ættu að stýra þessu. Ég hef ekki komist á snoðir um neitt slíkt. Það hefur enginn getað svarað því til að það geti með einhverjum hætti verið hættulegt að dreifa ösku einhvers staðar. Ég skil sjónarmiðin sem hv. þingmaður kemur inn á, eins og ég segi, og ég er alveg tilbúin að skoða þetta. En ég held reyndar að (Forseti hringir.) vatnsverndarsvæðin okkar séu í hættu út af ýmsum atriðum. Ég ætla að leyfa mér að telja þessa hættu lítilfjörlega í þeim efnum.