millilandaflug um Hornafjarðarflugvöll.
Virðulegur forseti. Flestir ferðamenn sem koma til landsins koma út í okkar yndislegu náttúru. Þar er flaggskipið okkar að sjálfsögðu Vatnajökulsþjóðgarður sem er með höfuðstöðvar á Hornafirði og hafa ferðamenn kannski verið þeir duglegustu að nýta sér Hornafjörð og Vatnajökulsþjóðgarð, það vörumerki, ef við getum sagt sem svo. (JFM: Og Jökulsárlón.) — Jökulsárlón er núna komið inn í Vatnajökulsþjóðgarð. Hann var stækkaður yfir allan Breiðamerkursand. Því held ég að varðandi náttúruvernd og loftslagsmál sé líka mjög mikil ábyrgð hjá stjórnvöldum að horfa til allra leiða til að draga úr loftslagslosun, þegar fólk skoðar þjóðgarðinn, og þessi þingsályktunartillaga verður til þess, alveg klárlega, þannig að ferðamennirnir komi bara beint þarna. Það er mikil umferð um Suðurlandið og þetta gæti dregið úr henni og eins dreifum við ferðamönnunum austar um landið, sem ég held að sé vilji og markmið allra.
Hv. þingmaður kom aðeins inn á staðsetningu vallarins. Ég held að þá sé fín byrjun að opna á millilandaflug um núverandi mannvirki og sjá svolítið hvaða tækifæri það mun gefa okkur, hvaða umsvif skapast. Og ef það fer að kalla á það mikil umsvif að það þurfi frekari innviðauppbyggingu til, þá hugsa ég að fjárfestar og aðrir skoði það hvort það sé betra að stækka á þeim stað sem völlurinn er núna eða hvort önnur svæði séu hentugri. En ég held að þetta sé góð byrjun á því að hleypa aukinni umferð um núverandi innviði og sjá svo hvað framtíðin ber í skauti sér.