Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 34. fundur,  21. nóv. 2022.

millilandaflug um Hornafjarðarflugvöll.

36. mál
[17:32]
Horfa

Birgir Þórarinsson (S):

Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka framsögumanni, hv. þm. Vilhjálmi Árnasyni, fyrir þessa ágætu tillögu. Þetta er að sjálfsögðu mjög mikilvægt mál og skiptir íbúa á Hornafirði sérstaklega miklu máli og fleiri en íbúa Hornafjarðar. Ég myndi segja að þetta skipti landsmenn alla máli því að betri flugsamgöngur á landsbyggðinni eru mikilvægur samgöngumáti og hagsmunamál allra landsmanna. Í því sambandi er rétt að hafa í huga að betri flugsamgöngur myndu að sjálfsögðu létta álagið á þjóðvegum landsins ef þær væru notaðar í meira mæli. Þetta er mjög góður samgöngumáti sem hentar okkur vel hér á Íslandi ef rétt er að málum staðið og flugvellir byggðir upp.

Það er mikið álag á þjóðvegum landsins eins og við þekkjum og það hefur aukist mikið á síðastliðnum árum, einkum og sér í lagi vegna aukinnar komu ferðamanna til landsins sem margir hverjir ferðast um á bílaleigubílum. Svo er ástandið víða ekki nógu gott, þó svo að á Suðurlandi sé t.d. verið að gera góða hluti í að eyða einbreiðum brúm o.s.frv. en þetta tekur allt langan tíma. Það tekur langan tíma að byggja upp þjóðvegakerfið á Íslandi, því miður, og þær framkvæmdir eru kostnaðarsamar. Á sama tíma er hægt að fara í uppbyggingu á flugvöllum eins og á Hornafirði með tiltölulega litlum kostnaði samanborið við uppbyggingu á þjóðvegakerfinu.

Það er annað sem er áhugavert við þetta málefni, frú forseti, að mínum dómi, og hefur rutt sér til rúms. Það er ný tækni, GPS-aðflugstækni, sem er mun einfaldari og ódýrari en sú tækni sem notuð hefur verið til þessa. Það gefur að sjálfsögðu aukin tækifæri fyrir þessa flugvelli úti á landi. Svo að menn skilji þetta aðeins betur þá er þetta með þeim hætti að flugmaður sem kemur í aðflug, þar sem þessi nýja tækni er fyrir hendi, getur kveikt á brautarljósum o.s.frv. úr flugvélinni sjálfri. Þetta skiptir máli í þessu samhengi og gefur auknar vonir um að Hornafjarðarflugvöllur sem dæmi verði samþykktur sem millilandaflugvöllur. Við þurfum einnig að hafa í huga skilgreiningar hvað varðar Hornafjarðarflugvöll og slitlag á flugbrautum þar sem er t.d. klæðning eins og við þekkjum úr vegakerfinu hér á landi. En þessi skilgreining hefur, að mér er sagt af þeim sem vel til þekkja, valdið misskilningi erlendis og jafnvel talið að um malarflugvöll sé að ræða þegar svokölluð klæðning er á flugbrautunum. Þetta þarf að skoða, að þarna sé enginn misskilningur á ferðinni vegna þess að klæðningin hefur gefið góða raun.

Ég fagna þessari tillögu. Þetta er mikilvægt mál og skiptir svæðið miklu máli. Hún skiptir sjúkraflugið miklu máli, sem er okkur mjög mikilvægt á þessu svæði, og almennar samgöngur. Það er líka óhætt að nefna að það væri ekki úr vegi — ég nefni það bara hér í þessu samhengi — að bæta t.d. flugvallaraðstöðu á Kirkjubæjarklaustri og í Vík í Mýrdal.

Svo ég víki aðeins að Vík í Mýrdal þá er þar flugvöllur sem getur gagnast mjög vel, t.d. í náttúruvá. Við vitum að samfélagið í Vík í Mýrdal býr við að Katla gæti gosið og fólk gæti þurft að yfirgefa sína heimabyggð mjög skyndilega og það gæti farið svo að leiðir lokuðust. Þá væri að sjálfsögðu mjög mikilvægt að hafa þar flugvöll sem væri í nothæfu standi, það er mikið öryggisatriði. Það er skynsamleg fjárfesting að mínu mati og ekki svo kostnaðarsöm. Mér skilst að það kosti undir 200 millj. að setja bundið slitlag á flugvöll eins og í Vík í Mýrdal og reyndar á Kirkjubæjarklaustri líka. Það eru ekki háar upphæðir í samanburði við þá uppbyggingu sem þarf að eiga sér stað í samgöngukerfinu. En þarna er alla vega fljótleg leið til að bæta samgöngur inn á svæðið, bæði á Kirkjubæjarklaustri og í Vík í Mýrdal, svo dæmi sé tekið. Ef þessi tillaga verður að veruleika og fær brautargengi, sem ég vona svo sannarlega, og fjárveitingar fylgja, þá er það upphafið að því að við förum að nýta flugsamgöngur meira á þessu svæði í Suðurkjördæmi eins og á landsbyggðinni allri.

Ég vildi bæta einu við varðandi þessa tillögu og það víkur að öryggismálunum sem ég kom aðeins inn á áðan. Það er náttúrlega mikið hagsmunamál fyrir ferðaþjónustuna að Hornafjarðarflugvöllur verði opnaður fyrir millilandaflugi. Það eru gríðarleg tækifæri þar sem ég veit að hv. þm. Jakob Frímann Magnússon þekkir t.d. ágætlega, og skiptir okkur verulegu máli. Það er eftirspurn eftir því að hingað komi ferðamenn sem vilja gagngert fljúga nær þessum náttúruperlum okkar. Hornafjarðarflugvöllur er kjörinn í því sambandi. Það er einnig mikið öryggismál að hann verði opnaður sem slíkur. Það hefur m.a. komið fram í skýrslu frá rannsóknarnefnd samgönguslysa að það að opna Hornafjarðarflugvöll fyrir millilandaflugi myndi auka þjónustu með aukinni umferð. Í skýrslu sem rannsóknarnefnd samgönguslysa gaf út í október á síðasta ári, vegna flugslyss í Múlakoti árið 2019, er bent á að ekki hafi reynst unnt að fá ákveðna tegund af eldsneyti á Hornafirði eins og flugmaðurinn hafði ætlað sér. Því miður var sú flugvél bensínlaus og brotlenti og þetta var alvarlegt slys sem hugsanlega hefði verið hægt að koma í veg fyrir. Þetta er öryggismál og ef millilandaflugvöllur væri þarna til staðar væri öll þessi þjónusta í boði.

Ég vona svo sannarlega, frú forseti, að við förum að sjá fram á það að þessi tillaga verði samþykkt og fái afgreiðslu. Þetta er, eins og ég sagði áðan, hagsmunamál fyrir þetta svæði sérstaklega og sveitarfélagið Hornafjörð, ferðaþjónustuna á Suðurlandi og einnig almennt fyrir landsmenn. Þetta léttir álagið á vegum landsins en umferðin hefur aukist verulega á síðustu misserum. Þarna höfum við ónýtt tækifæri til að bæta samgöngur með tiltölulega litlum kostnaði í samanburði við það fjármagn sem fer í að byggja upp vegi landsins.

Að endingu segi ég, frú forseti: Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessa tillögu. Ég vona að hún fái góða og málefnalega umræðu hér í þinginu og í nefndinni og að við fáum að sjá að hún verði samþykkt hér.