153. löggjafarþing — 34. fundur,  21. nóv. 2022.

skjaldarmerki frá 1881 á framhlið Alþingishússins.

43. mál
[17:41]
Horfa

Flm. (Birgir Þórarinsson) (S):

Frú forseti. Ég mæli hér fyrir tillögu til þingsályktunar um skjaldarmerki frá 1881 á framhlið Alþingishússins. Flutningsmenn eru, ásamt þeim sem hér stendur, hv. þingmenn Ásmundur Friðriksson og Óli Björn Kárason.

Tillagan hljóðar svo, með leyfi forseta:

„Alþingi ályktar að gera nauðsynlegar ráðstafanir til að setja upp að nýju skjaldarmerki sem prýddu framhlið Alþingishússins á vígsludegi þess 1. júlí 1881.“

Í greinargerðinni segir að þingsályktunartillaga þessi hafi áður verið lögð fram á 152. löggjafarþingi og er því endurflutt óbreytt. Með tillögunni er lagt til að skjaldarmerkin sem prýddu Alþingishúsið allt þar til þau voru fjarlægð árið 1904 verði sett upp að nýju. Um er að ræða tvö skjaldarmerki, annars vegar skjaldarmerki handhafa valds á Íslandi frá fyrri öldum, krýndur útflattur þorskur á rauðum skildi, hins vegar skjaldarmerki Danmerkur, þrjú krýnd ljón.

Eftir samtöl við fyrrum þjóðminjavörð, Þór Magnússon, þá skilst mér að þessi skjaldarmerki séu til og varðveitt og því þarf í raun og veru ekki að gera ný skjaldarmerki sem gerir það að verkum að kannski er hægt að nota þau gömlu áfram, sem væri mjög ánægjulegt í þessu sambandi. Markmiðið með tillögunni er að færa framhlið hússins í upprunalegt horf og halda jafnframt í heiðri eigin sögu sem mikilvægt er að skilja og skylt er að varðveita. Ég held að það sé afar mikilvægt í þessu sambandi að þetta er partur af sögunni, partur af sögu hússins og við eigum að mínum dómi að sýna því ákveðna virðingu, varðveita þetta og setja upp aftur. Endurbætur á Alþingishúsinu á umliðnum árum hafa miðast að því að húsið sé sem næst upprunalegu horfi frá því að það var reist 1881. Ég held að mjög vel hafi tekist til í þeim efnum og vil nota tækifærið og þakka þeim handverksmönnum sem hafa komið að því að koma okkar fallega Alþingishúsi í upprunalegt horf, þeim sem hafa staðið að hönnun og öðrum slíkum verkþáttum.

Þessi tillaga miðar að því marki að komandi kynslóðir eigi rétt á því að þekkja söguna og þau mannvirki og kennileiti sem bera henni vitni, þar á meðal Alþingishúsið í upprunalegri mynd. Tillögunni fylgir síðan mynd af framhlið Alþingishússins þar sem þessi skjaldarmerki sjást og eins og ég sagði áðan, frú forseti, þá eru þau til og því væri hægt að nota gömlu merkin aftur og setja þau upp að nýju. Fyrir áhugasama má benda á að það er hægt að sjá merkin og framhlið Alþingishússins prýdd þeim, eins og hún var í upphafi, á netinu og á vef Alþingis.

Að þessu sögðu þá vísa ég málinu til hv. allsherjar- og menntamálanefndar og vona að tillagan fái góðar og jákvæðar undirtektir. Það verður fróðlegt að heyra hvaða skoðun þeir sem til þekkja í þessum efnum hafa á tillögunni. Ég hef fengið jákvæð viðbrögð við tillögunni og ég vona að hún fái framgang innan nefndarinnar.