skjaldarmerki frá 1881 á framhlið Alþingishússins.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Tómasi A. Tómassyni fyrir þetta frábæra innlegg inn í þessa umræðu. Það á svo sannarlega við og við gætum tekið langa umræðu um arkitektúr miðborgarinnar og þau mistök sem hafa verið gerð hér, því miður, þau eru mörg. Það er kannski líka nauðsynlegt í þessum efnum að vera vakandi og það heyri ég að hv. þingmaður er svo sannarlega, hann er vakandi yfir því sem er að gerast hér í miðborginni og við eigum að láta í okkur heyra hvað það varðar. Við þurfum að varðveita söguna, við þurfum að varðveita þennan gamla íslenska byggingarstíl almennt. Það er nú að verða einhver smá vakning, held ég, í þeim efnum. Við sjáum að verið er að reisa ferðaþjónustusvæði þar sem er skírskotun til gamla íslenska byggingarstílsins, torfbæjarins, okkar eiginlega merkilegasta framlags til byggingarlistarinnar, ef svo má að orði komast, svona alla vega í alþjóðlegu samhengi. Þar finnst mér vera einhvers konar vakning og vonandi heldur hún áfram, vegna þess að það hefur sýnt sig, frú forseti, að ferðamenn hafa t.d. mikinn áhuga á að sjá þessa gömlu bæi, þeir leita eftir gömlum miðbæ o.s.frv. Við þurfum að horfa meira til þessa tíma, ég hef verið talsmaður þess, bæði hér í þéttbýlinu og í dreifbýlinu einnig. Við sjáum t.d. að almennt séð vekja okkar litlu sveitakirkjur sem eru víðs vegar um landið athygli ferðamanna og eru sóttar af mörgum ferðamönnum til að skoða og taka myndir, svo dæmi sé tekið.
Ég vil bara þakka hv. þingmanni fyrir þetta góða innlegg og óska honum til hamingju með spegilinn hér, að hann sé tengdur þeirri gjöf á sínum tíma, (Forseti hringir.) mjög ánægjulegt, (Forseti hringir.) hér er um mjög fallegt verk að ræða.