skjaldarmerki frá 1881 á framhlið Alþingishússins.
Virðulegur forseti, hv. þingmenn. Talandi um arkitektúr í miðbænum þá vil ég benda á Þjóðleikhúsið. Ég vil benda á Safnahúsið. Ég vil benda á gamla Reykjavíkurapótek og pósthúsið. Þetta eru allt saman gullfallegar byggingar sem eiga svo sannarlega rétt á sér. Ég var í Búkarest fyrir nokkrum árum og þar er í hluta af bænum búið að byggja nýmóðins hús sem enginn hafði áhuga á en allir fóru í gamla bæinn sem var byggður á 19. öld og jafnvel fyrr. Þess vegna er ég svo ánægður með hvað verið er að breyta Reykjavíkurborg í svona, ja — ég segi stundum: Þetta er leiksvið fyrir útlendinga, en það er líka verið að byggja á gömlum gildum. Ég vona bara að þetta frumvarp hv. þingmanns fái afgreiðslu og verði framkvæmt.