153. löggjafarþing — 35. fundur,  22. nóv. 2022.

Störf þingsins.

[13:32]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P):

Virðulegi forseti. Frá því ég settist fyrst á þing hef ég komið nokkrum sinnum hingað upp í pontu til að leita atbeina þings og forseta til að gæta að virðingu Alþingis, þessarar æðstu stofnunar lýðveldisins sem skipuð er lýðræðislega kjörnum fulltrúum almennings á Íslandi. Þingmannastarfið er í mörgu ófyrirsjáanlegt og óskipulagt. Að morgni veit ég sjaldnast hvort ég kemst heim í kvöldmat eða ekki, enda skipast veður sérdeilis skjótt í lofti yfir Austurvelli og aldrei að vita hvað getur komið til kasta þingsins dag hvern. Við sem bjóðum okkur fram í þetta hlutverk vitum að hverju við göngum og tökum því með þeirri auðmýkt sem starfið á skilið. Það er hins vegar ekki alveg nóg að við hér á þingi höfum væntingar til þess að stjórnsýsla og almenningur beri virðingu fyrir Alþingi heldur verður sú virðing að ganga í báðar áttir. Því miður hefur fyrirkomulag starfs fastanefnda Alþingis ekki alltaf einkennst af slíkri virðingu fyrir tíma og vinnu þeirra sem lagt hafa þinginu lið með því að veita umsagnir um lagafrumvörp og önnur mál sem þingið hefur til umfjöllunar. Það er auðvitað mjög mikilvægt að þingið eigi þetta samtal við almenning og jafnvel má segja að þetta sé einn mikilvægasti þátturinn í okkar vinnu. Of mikið ber á því að þeir aðilar sem af auðmýkt og einlægni hafa samþykkt að ljá þinginu sína sérþekkingu og álit séu t.d. boðaðir á fund fastanefndar með engum fyrirvara. Ég ætla því að nota þetta tækifæri, þegar við ræðum um störf þingsins, og leggja til að við gerum ekki kröfu um að heimurinn snúist í kringum okkur og okkar illfyrirsjáanlegu stundaskrá heldur gerum okkar allra besta til að taka tillit til og sýna tilhlýðilega virðingu gagnvart tíma annarra.